Ársrit Kaupfjelags Þingeyinga - 01.01.1919, Blaðsíða 18
20
Athugasemdir.
Framanskráður kostnaðarreikningur K. t*. er allmikið saman
dreginn og bygður á fjölda aukareikninga og fylgiskjaia. Hann
verður því ekki, svona út af fyrir sig, full-skiljanlegur ókunn-
ugum. Til nokkurra skýringa má taka þetta fram:
1. tekjuliður b. eru uppbætur frá viðskiftamönnum og á-
byrgarfélögum fyrir vörur, sem vöntuðu, skemdust eða glöt-
uðust, áður en þær komust til félagsins, á árinu 1917.
2. tekjuliður b. eru vextir af upphæð í stofnsjóði Söludeild-
ar, sem K. Þ. er eigandi að, eftir dáinn mann, og tekin var í
skuld.
5. tekjuliður eru uppbætur á árinu 1918, samskonar og þær,
sem taldar eru í 1. tekjulið b. á árinu 1917.
1. gjaldaliður eru ýmislegar, ætíð óhjákvæmilegar leiðrétt-
ingar á f. á. reikningum, ýmist gleymd smáútgjöld eða of
seint fram komin, smá reikningavillur eða útborganir, eftir á-
lyktunum félagsstjórnar og fulltrúaráðs, eða bendingum end-
urskoðenda. I'að er eftirtektavert, hve þessi upphæð er lítil á
svo stórum og margbrotnum reikningum.
13. gjaldliður er ýmislegar bakslettur, sem fram komu á
vörureikninga til K. F\, svo sem aukafragtir, ábyrgðargjöld,
upp og framskipanir, pakkhúsleigur o. s. frv., en reikningsskil
komu svo seint fyrir, að það varð ekki tekið inn á verðreikn-
inga K. I5. og félagsstjórn var ókunnugt um, þá er verðreikn-
ingurinn var fuligerður. Þessar upphæðir varð því að greiða
úr kostnaðarsjóði, í stað þess að leggja þær á verð þeirra
vara, sem ollu kostnaðinum.
Að öðru leyti munu kaupfélagsmenn geta áttað sig á upp-
hæðum reikningsins.
B.J.