Ársrit Kaupfjelags Þingeyinga - 01.01.1919, Side 45

Ársrit Kaupfjelags Þingeyinga - 01.01.1919, Side 45
47 brestur einurð, þekkingu eða viljaþrek til þess, að vísa á bug vöru þeirra manna, sem gera sig seka um slík brot, og það þó að hann viti, að til kunni að vera aðrir matsmenn, sem ekki eru vandari að virðingu sinni en það, eða skilja ekki betur starf sitt og ábyrgð en svo, að slíkir menn eigi athvarf hjá þefm. Hitt atriðið er það, sem matsmaðurinn segir um úrgangs og mislitu ullina, og kæruleysið um verkun þessara flokka ullarinnar, sem ber svo mikið á hjá ýmsum. Það eru til þeir félagsmenn í K. Þ., sem koma með meginull sína, hina hvítu, ágætlega verkaða og umgengna að öllu leyti, en mislitu og úrgangsullina þannig, að óþverra gengur næst. Þetta er skað- legur misskilningur. Allir ættu. að geta skilið, að verksmiðj- unum, sem vinna dúka úr öllum flokkum ullarinnar, muni ekki þykja betra að kaupa saur og óþverra, þótt honum sé blandað í mislita ull, en ekki hvíta. Auðvitað getur dökka ullin dulið meira af óhreinindum en hin hvíta. En að selja saur í stað ullar hvar sem hægt er að dylja hann, það eru svik, og þau hefna sín ætíð, og það sem verst er, jafnt á saklausum sem sekum. Menn verða að gæta þess, að mislita ullin, og fællingar og kviðull, er líka vara, sem hefir nota- gildi til dúkagerðar, og það gildi er hægt að margfalda, og verðið um leið, með vandvirkni og ráðvendni, engu síður en hinnar annarar ullar. Mislita ullin er notuð alveg á sama hátt og hvíta ullin, og unnin með samskonar áhöldum, aðeins í annarskonar dúka, sem eru engu ódýrmætari en hinir úr hvítu ullinni. Mislita og úrgangs ullin þarf því að fá alveg sömu verkun, meðferð og undirbúning til markaðarins sem sú hvíta, ef hún á að geta notið verðgiidis síns. Þetta þarf mönnum að skiljast, og því er betur, að mörgum er að skiljast það, en — því miður — ekki öllum, og því verða ullarmatsmenn- irnir að vera alvarlega á verði, og ekki linna fyrri en mark- inu er náð, að vinna íslensku ullinni gott álit, tiltrú og hátt verð á heimsmarkaðinum. B. /.

x

Ársrit Kaupfjelags Þingeyinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Kaupfjelags Þingeyinga
https://timarit.is/publication/270

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.