Ársrit Kaupfjelags Þingeyinga - 01.01.1922, Blaðsíða 5
7
mál, og undirbúa tillögur um það fyrir næsta fund fé-
lagsins.
8. Flutti framkvæmdastjóri skýrslu sína um rekstur fé-
lagsins á næstl. ári. Gerði hann grein fyrir, hvernig kaup-
uin hefði verið hagað á útlendum vörum, og reynt á all-
an hátt að draga kaup á þeim, í von um verðfall, sem
drógst miklu lengur, og varð minna en vænst hafði verið.
Sömuleiðis skýrði hann frá, hvernig sala gjaldeyrisvaranna
hefði gengið, að því leyti sem þeirri sölu er enn lokið.
Pá skýrði hann frá, hvar komið væri framkvæmdum
þeirra mála, sem síðasti aðalfundur K. Þ. hafði falið fé-
lagsstjórn til meðferðar og framkvæmda, svo sem stéttar-
byggingu í Húsavík, tóvinnu á Halldórsstöðum, kaup á
prjónavélum, útvegur sambanda við klæðaverksmiðjur,
byggingu ostageymsluskála, gistinga í Húsavík og fl. —
Að lokinni skýrslunni voru gerðar nokkrar fyrirspurnir, sem
framkvæmdastjóri svaraði.
9. Lagði framkvæmdastjóri fram og las upp áætlun
um hag deildanna og félagsins í heild um áramótin.
Sýndu þessar áætlanir, að reikningshagur félagsins út á
við myndi vera líkur og í ársbyrjun 1921. Aftur á móti
höfðu skuldir deildanna aukist til muna. Pessi aðalútkoma
kemur af því, að vöruforði bæði í pöntun og Söludeild
er miklu minni nú en á sama tíma fyrra ár, og af mikið
minni vörukaupum til Söludeildar en að undanförnu.
10. Flutti sá af gæslustjórum Söludeildar, sem á fundi
var, mjög ítarlega og greinilega skýrslu um hag og rekst-
ur verslunarinnar á næstliðnu ári. Mæltist sú skýrsla vel
fyrir, en olli engum umræðum að sinni.
11. Pá var gengið til kosninga, og kosnir: