Ársrit Kaupfjelags Þingeyinga - 01.01.1922, Qupperneq 10
12
og verðið sett með tilliti til verðs á þeim vörum, sem
þá koma frá útlöndum.
21. Borin upp og samþykt svofeld tillaga frá Kinnar-
deild:
»Fundurinn óskar þess, að stjórn K. Þ. leiti samtaka
meðal allra verslana í Húsavík um, að flytja ekki inn frá
útlðndum á þessu ári aðrar vörur en óhjákvæmilegar
nauðsynjavörur.«
22. Akvað félagsstjórnin, að sumarpantanir og áætlanir
deildanna séu komnar á skrifstofu K. I3. í Húsavík fyrir
15. Marts næstk.
23. Utaf umræðum um saltkétsverslunina í K. I3., voru
samþyktar þessar fundarályktanir:
a. Fundurinn skorar á félagsstjórnina, að kynna sér sem
allra best horfur fyrir innanlandssölu vænsta og besta
kéts sem félagið hefir, og rannsaka hvort á þann hátt
geti fengist hærra verð fyrir það két, en með því að
senda það á erlendan markað.
b. Fundurinn beinir þeirri áskorun til félagsstjórnarinnar,
að hún láti gera pylsur úr sem mestu af hinu lélegasta
kéti, sem fyrir felst á næsta hausti á báðum státurhús-
um K. í5., ef sæmilegt útlit er íyrir sölu á pylsum.
24. Samþykt í einu hljóði þessi tillaga frá félags-
stjórninni:
»Fundutinn ákveður að fela félagsstjórninni að Iáta taka
á móti nýjum fiski á fiskhúsi K. Þ. í Húsavík á næsta
sumri, verka hann til útflutnings, konia honum á markað,
eins og öðrum gjaldeyrisvörum félagsmanna í K. f*., og
verðreikna hann eftir sömu reglum sem sláturfjárafurðir.
Fundurinn ákveður að K- f5. taki að sér aðalforstöðu