Ársrit Kaupfjelags Þingeyinga - 01.01.1922, Side 17

Ársrit Kaupfjelags Þingeyinga - 01.01.1922, Side 17
19 mikilli þverúð, ósanngirni og hlutdrægni oft og einatt er beitt í þeim málum, frá beggja aðila hálfu, bæði þeirra, er vinnu sína selja og hinna, er hana kaupa. Það er hlutverk og siðferðisleg skylda samvinnumanna, að ganga á undan með gott eftirdæmi í þessum málum sem 'öðrum, vinna að því, að hvervetna sé gætt réttlætis ogsanngirnis, svo að enginn gjaldi eða njóti aðstöðu sinnar, heldur að hver fái réttlát laun í hlutfalli við það, sem hann innir af höndum, og þá ábyrgð, sem verkunum fylgir. Það eitt er sannur sparnaður. * * * * * * „ * * * A kostnaðarreikningnum hér að framan er vátrygging vara og lausafjár taiin aðeins 900 kr. Þetta er ekki rétt, því sú upphæð er miklu hærri, eða nokkuð á þriðja þús- und króna. Þessi villa kemur af því, að lausafjárvátrygg- ingin hafði, af vangá, blandast saman við vátryggingu fasteignanna, í reikningum félagsins, og á annað þúsund króna af lausafjárvátryggingargjöldunum lent á fasteigna- sjóði, sem hann auðvitað þarf að fá endurgoldið aftur frá kostnaðarsjóði. Vátryggingargjöld allra samvinnufélaganna, sem eru í sambandinu, fyrir vörur og lausafé, nema árlega stórfé, líklega mörgum tugum þúsunda, sem alt fer út úr land- inu, og kemur ekki teljandi af því til baka sem bætur fyrir tjón. það er nú eitt af frernstu grundvallaratriðum samvinnu- skipulagsins, að þátttakendurnir bera sjálfir alla fjárhagslega ábyrgð á rekstri þess starfs, sem þeir hafa með höndum, og fá líka þann hagnað, sem af því leiðir, í samanburði við að kaupa þá ábyrgð af öðrum, hvort heldur einstök- um mönnum eða stofnunum, sem taka fyrir það eftir viid sinni, og allir vita að það er ætíð svo mikið, að ágóði verður í heildinni, og hann oft stórkostlegur. , Hví skyldu nú ekki samvinnufélögin einnig bera þessa ábyrgð sjálf hvert með öðru og sameiginlega, og njóta þess hagnaðar, sem af því hlýtur að verða, ef þau greiða 2*

x

Ársrit Kaupfjelags Þingeyinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Kaupfjelags Þingeyinga
https://timarit.is/publication/270

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.