Ársrit Kaupfjelags Þingeyinga - 01.01.1922, Síða 25

Ársrit Kaupfjelags Þingeyinga - 01.01.1922, Síða 25
27 málaglundroði ætti enginn áhrif að hafa haft á efnahags- ástand K. f*. og félagsmanna yfirleitt, en það verður samt að endurtakast, að mikið of mikill hluti félagsmanna hafa ekki tekið nægilegt tillit til ástandsins í heiminum, og hugs- að sér að lifa áfram eins og ekkert væri um að vera, og með því stofnað sér og félagi sínu í vanda, að vísu ekki óleysanlegan vanda, er sé nokkurt örvæntingarefni, en vanda, sem verður að leysast, og ekki verður leystur nema með áreynslu og samtökum allra. Pað eru þessi samtök, sem verður að krefjast af öllum samvinnumönnum; sinni þeir því ekki, þá eru þeir ekki samvinnumenn. En til þess að samtökin fáist og nái tilgangi sínum, þeim, að reisa við fjárþagsástandið, bæði einstaklinganna og félagsheildarinnar, breyta undanhaldi í framsókn, tapi í gróða, vantrausti og aðgerðaleysi í vakandi starfsemi, verða menn að skilja á- standið sem er og orsakir þess, hvað það er, sem við er að stríða, hvað það er, sem þarf að sigrast á; og þetta litla rit er til þess samið, að reyna að gera félagsmönn- um sem ljósastar allar ástæður félagsins og féiagsmanna, svo þeir skilji um hvað samtökin fyrst og fremst verða að vera, skilji fyrir eigin rannsókn og. þekkingu á þeim virkileika, sem réttar hagskýrslur sýna, en þurfa ekki að byggja skoðanir sínar á neinskonar fortölum eða órök- studdum. ímyndunum. Þetta er því nauðsynlegra, sem ruglingurinn er meiri í skoðunum og stefnum, sem uppi eru og að mönnum er haldið. Og nú eru einmitt tímar, sem sérstaklega krefjast sjálfstæðrar rannsóknar og skilnings hver§ manns á viðskiftamálunum. En það er margt, sem villir þá, sem ekki hafa aflað sér þeirrar þekkingar og skilnings, sem þarf til þess að hafa rökstudda og sjálfstæða skoðun, óháða öilum stéttahagsmunum, hleypidómum, venj- um og viðtektum. Margskonar raddir óma í eyrum almenn- ings, raddir þeirra manna, sem ýmist vegna ímyndaðrar visku eða vegna eigin hagsmuna vilja gerast leiðtogar og lærifeður þjóðarinnar í viðskiftamáltmum. Og nú um þessar mundir lætur hæst í kaupmannastéttinni, enda hefir

x

Ársrit Kaupfjelags Þingeyinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Kaupfjelags Þingeyinga
https://timarit.is/publication/270

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.