Ársrit Kaupfjelags Þingeyinga - 01.01.1922, Page 36

Ársrit Kaupfjelags Þingeyinga - 01.01.1922, Page 36
38 Athugasemdir: Tjarhagsástæður sparisjóðsins hafa á árinu 1921 tekið þessum breytingum: Fasteignaveðslán hafa vaxið um . kr. 19662 18 Sjálfskuldarábyrgðarlán hafa vaxið um . — 4866 51 Ny lán gegn ábyrgð sveitarfélaga ... — 2000 00 dto gegn handveði ...... — 2000 00 Alls hafa útlánin hækkað um — 28528 69 Víxillán hafa lækkað um...........— 1150 00 Innstæðufé sparisjóðsins í veltufé K. tJ. hefir lækkað um ........ — 34576 73 Innstæðueigendum hefir fjölgað um 6, en innstæðuféð þó lækkað um . . . . — 8543 86 Viðlagasjóður hefir vaxið um . . . . — 1380 54 Af þessu yfirlirliti sést, að á árinu hefir alveg óvanalega mikið verið lánað út úr sjóðnum, og langtum mest gegn fasteignaveðum. Abyrgðarlán hafa að vísp ofurlítið vaxið, en víxillánin fara altaf minkandi ár af ári, og virðist það bera vott um vaxandi varfærni og vandvirkni í meðferð fjárins, að því er tryggingar snertir, sem auðvitað er nausynlegt á þessum öfgatímum. Ekkert af þessum lánum hefir gengið út úr félaginu; þau eru öll hjá félagsmönnum, og eingöngu veitt þeim til þess, að létta þeim aðstöðu þeirra í félaginu, bæði til fram- kvæmda og efnahagsviðreisnar. Eins og auðvitað er, hlaut innstæðufé sjóðsins í veltufé K. Þ. að minka, bæði um það, sem úilánin hafa vaxið, og innstæðufé minkað. Þessi auknu útlán hafa því haft spillandi áhrif á fjárhagsástæður félagsheildarinnar út á við, en að sama skapi bætandi áhnf á fjárhagsástæður deild- anna og einstakra félagsmanna, enda var það tilætiunin með lánunum, í þeirri von, að félagsheildinni yrði mögu- legra en einstaklingunum, og deildunum að velta lánum til rekstursfjár.

x

Ársrit Kaupfjelags Þingeyinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Kaupfjelags Þingeyinga
https://timarit.is/publication/270

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.