Ársrit Kaupfjelags Þingeyinga - 01.01.1922, Side 48
50
Athugasemdir:
Þessi skýrsla er með nokkuð öðru móti en að» undan-
förnu. I fyrra árs riti náði hún aðeins yfir vörukaup deild-
anna, en upphæðir vöruinnleggsins voru ekki sýndar á
sömu skýrslu, eins og nú, en það er gert tii þess, að fá
sem Ijósastan samanburð á keyptum og seldum vörum á
árinu. En ýmisiegt er að athuga við skýrsluna, svo að
hún verði full skiljanleg, þvi sumar tölur í heijni eru, fyrir
sérstakar ástæður, mjög svo villandi, einkum að því er
vöruinnleggið eða hinar seldu vörur snertir. ÖII peninga-
og ávísana-viðskifti deildanna liggja ufan við þessa skýrslu,
en þau hafa mjög svo mismunandi áhrif á hlutföllin milli
vöruinnleggs og vöruúttektar hverrar deildar fyrir sig. Hjá
sumum deildunum auka þau viðskifti úttektina, en hjá
öðrum innleggið. Að sýna það alt er ekki tilgangur þess-
arar skýrslu, heldur aðeins að sýna vöruveltuna út og inn,
bæði hjá hverri einstakri deild og hjá félaginu í heild.
En því miður getur hún ekki fullkomlega sýnt þetta hjá
öllum deildunum. Par eru tvær deildirnar algerð undan-
tekning, nefnil. hin 5. og hin 20. Aðal innleggsvörur
þessara deilda eru sjávarafurðir, fiskur og lýsi. í þeim
báðum voru fyrir nokkrum árum stofnuð s>fiskisamlög«,
sem á eigin kostnað og ábyrgð hafa verkað og selt sjáv-
arafurðirnar, en látið söluverðið ganga til kaupfélagsins.
A skýrslunni eru því í vöruinnleggs-dálkinum aðeins tald-
ar þær landbúnaðarafurðir, sem þessar deildir höfðu til
sölu og kaupfélagið hafði til meðferðar og útflutnings, en
sjávarafurðirnar ekki, en þær nema stórum upphæðum hjá
þessum deildum. Af þessu kemur það, að hlutföllin milli
seldra og keyptra vara eru svo mikið öðruvísi hjá þessum
deildum en hjá hinum deildunum, enda auðsætt, að þau
hlutföll gætu ekki með nokkru móti átt sér stað. Nú hefir
þessu fyrirkomulagi verið breytt. Fiskisamlögin eru lögð
niður sem sjálfstæðar stofnanir. K. Þ. hefir reist fiskmót-
tökuhús með sama fyrirkomulagi og sláturhúsin, og þar