Ársrit Kaupfjelags Þingeyinga - 01.01.1922, Síða 55

Ársrit Kaupfjelags Þingeyinga - 01.01.1922, Síða 55
57 Athugasemdir: Eign félagsmanna í þessum sjóði hefir á árinu vaxið um kr. 18962,42, eða um kr. 24,42 á hvern félagsmann að meðaltali. Meðaleign félagsmanna í sjóðnum er nú kr. 188,10. Tala félagsmanna hefir staðið í stað á árinu, aðeins fjölgað um einn mann, úr 769 í 770. Árin 1918 — 1920 fjölgaði félagsmönnum óhóflega, einkum af þurrabúðar- mönnum og ýmsu fólki, sem ekki hafði neinn fastan at- vinnuveg að bakjarli, og lítinn skilning á samvinnumálum. Eins og raunar við mátti búast, hefir þetta mikla aðstreymi af lítt þroskuðum lausingjalýð orðið félaginu að vandiæði! Skuldir hafa myndast, sem lítil eða engin eign og óviss atvinna stendur á bak við, og þarf bæði lægni og festu til að kippa þessu í lag. Má búast við, því miður, að nokkuð af þessum mönnum hljóti að hröklast aftur úr fé- Iaginu á næsta ári. Félagið megnar ekki að svo stöddu að bera blak af þeim og kenna þeim lífsreglur samvinnu- manna; tíminn til þess er óhentugur, eins og nú stendur, þegar hver hefir nóg með sjálfan sig. í sveitadeildunum ber lítið á þessu riðli í félagsskapnum, enda eru í þeim flestum gamlir og æfðir deildarstjórar, eða þá ungir menn, sem fengið hafa samvinnuuppeldi og láta ekki blekkjast af neinum villukenningum, sem nú er svo fast haldið að almenningi.

x

Ársrit Kaupfjelags Þingeyinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Kaupfjelags Þingeyinga
https://timarit.is/publication/270

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.