Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1915, Qupperneq 26

Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1915, Qupperneq 26
28 Tröð. Undir vissum kringumstæðum má þó bæta úr steinefnaskorti á annan hátt. Sé jarð- vegurinn orðinn fátækur og ófrjór fyrir rányrkju um lengri eða skemri tíma, getur það bætt nokkuð úr, að láta landið liggja i tröð um lengri eða skemri tírna. Ófrjósemin þarf ekki endilega að vera komin af algerð- um efnaskorti í jarðveginum, orsökin getur verið sú, að efnin séu ekki i nothæfum samböndum. Sé slikur jarðvegur lagður i tröð, og einkum ef hann er unninn á hentugan hátt, þá vinst tími og veitast skilyrði til þess að efni hans breytist í nothæf sambönd, og sá er lika tilgangurinn. Sáðskifti Sama tilgangi má og ná á enn annan hátt. Jarðvegurinn getur orðið ófrjór fyrir það, að eitt af hinum nauðsynlegu efnum eyðist við slöðuga ræktun sömu plöntutegundar, sem notar tiltölulega meira af því efni en öðrum. Af þessu efni getur þó enn ver- ið nægur forði fyrir aðrar tes<undir plantna, sem minna þurfa af því, eða geta notað það og leyst úr tregleyst- um samböndum. Getur þá fengist fullkomin uppskera enn um nokkurt árabil, með því að skifta um plöntur og án sérstaks tilkostnaðar til að bæta úr skorti á því efni, sem of lítið var orðið af, fyrir þær tegundir (eða tegund), sem áður voru ræktaðar. Síðan má skifta um aftur og svo koll af kolli, á þann hátt, að jöfnuður verði á eyðslu efnanna úr jarðveginum. Þetta kallast sáðskifti og er algengt i öðrum löndum og talið sjálf- sagt. Hafi korn verið ræktað lengi á sama stað, þá er sá jarðvegur orðinn fátækur af fosfór, en getur þó enn haft nægan forða af því efni fyrir rótarávexti. En þau.

x

Búnaðarsamband Austurlands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Búnaðarsamband Austurlands
https://timarit.is/publication/273

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.