Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1915, Blaðsíða 32

Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1915, Blaðsíða 32
34 feiknastórir landflákar með frjósamasta jarðvegi, auðug- um bæði af lífrænum og ólífrænum jurtanærandi efnum, hin svokallaða „svarta jörð“, en skifting landsins —stærð jarðeignanna — er svo óhagstæð og jarðyrkjan á svo lágu stigi, að afurðir landsins eru mjög litlar, og þegar hart er í ári er stórkostleg hungursneyð vís. Þetta vesæla ástand má eflaust að nokkru leyti kenna stjórnarfarinu, en yfirleitt fer því fjarri að góð búskaparskilyrði og velmegun og vellíðan bændastéttar- innar séu fastir förunautar, svo eðlilegt sem það virðist þó vera. I hitabeltinu vex mest af verðmætum plöntum, þar er gróður fjölskrúðugastur og þar geta menn aflað dýr- astrar uppskeru af gefnu flatarmáli. En örlæti náttúr- unnar við íbúana þar, tekur frá þeim hvötina til þess- að leggja á sig nokkurt erfiði eða sýna nokkra fyrir- hyggju. Þar ganga menn út að morgni til að afla dag- legra nauðsynja, láta hverjum degi nægja sínar þjáning- ar, og bera engar umhyggjur fyrir þörfum morgun- dagsins. Loftslagið þar gerir vinnuna erfiða, og leti er þar landlægur löstur. En hin gjafmilda náttúra er þar líka oft strangur og óútreiknanlegur harðstjóri: Fellibylj- ir, vatnsflóð, þurkar árum saman og aðrir dutlungar náttúrunnar, sem mennirnir ráða ekkert við, gera þar oft stórtjón. Hin eyðandi öfl náttúrunnar þar eru engu síður sterk en hin framleiðandi eða uppbyggjandi: Hit- inn, yfirgnæfandi raki á regntímanum, skordýramergð o. fl. leggjast á eitt að eyðileggja afurðirnar, er menn hafa aflað sér. Evrópubúar þola ekki hitabeltisloftslagið og þessvegna gera þeir lítið landnám þar, nema þá svo- hátt til fjalla, að loftslagið sé temprað.

x

Búnaðarsamband Austurlands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Búnaðarsamband Austurlands
https://timarit.is/publication/273

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.