Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1965, Blaðsíða 9
LANDSBÓKASAFNIÐ 1964
9
Úr viSgerðarstojunni
Haraldur Sigurðsson sá m. a. um landabréfadeild og hélt áfram samningu efnisskrár
blaða og tímarita, hinu þarfasta verki.
Agnar Þórðarson og Halldór Þorsteinsson önnuðust einkurn vörzlu og afgreiðslu
á lestrarsal, en Halldór jafnframt útlán bóka.
Eins og áður hefur verið getið í árbók, féll starf Péturs Sigurðssonar að Islenzkri
bókaskrá niður um árabil vegna embættisanna hans. Pétur tók á síðasta ári aftur til
við skrána, og eru nú horfur á, að unnt verði að hefj a setningu hennar á þessu ári.
Margt fróðlegt kemur að vonum upp við könnun sem þessa, og eru þættir þeir eftir
Pétur úr prentsmiðjusögu 18. aldar, er birtir eru í þessari árbók, gott dæmi um það.
Væri óskandi, að árbókin gæli síðar flutt fleiri slíka þætti.
Viðgerðarstoía
Frú Vigdís Björnsdóltir handavinnukennari var árið 1964 ráðin
til að annast viðgerð handrita og skjala beggja safnanna, Lands-
bókasafns og Þjóðskjalasafns, en hún hafði sumarið 1963 numið slíka viðgerð hjá
Roger Powell, einum kunnasta bókbindara á Englandi. Kvenstúdentafélag Islands
veitti frú Vigdísi námsstyrk og átti drjúgan þátt í því að koma skriði á þetta mál. Al-
þingi samþykkti ríflega fjárveitingu til áhaldakaupa og innréttingar viðgerðarstofu