Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1965, Blaðsíða 11

Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1965, Blaðsíða 11
LANDSBÓKASAFNIÐ 1964 11 eða ekki þurfti á bókum safnsins að halda og bægði þannig oftlega þeim frá, sem brýnna erindi áttu í safnið. Vöxtur sá, er fram kemur síðustu árin í notkun handrita safnsins, er eðlilegur, þegar þess er gætt, að starfsmenn Handritastofnunar Islands og fleiri hafa á þeim tíma haft fast aðsetur í handritasalnum. Endurbaetur Alþingi samþykkti að veita á fjárlögum 1965 væna upphæð til ýmissa endurbóta á Safnahúsinu. Þegar þetta er ritað, er sumum þeirra lokið, en aðrar á döfinni. Um leið og alþingi skulu færðar þakkir fyrir þessa úrlausn, er þess vænzt, að unnt verði á næsta ári að vinna að enn frekari endurbótum, því að þeirra er vissulega mikil þörf. Handritamálið ^'ns °g menn muna, gaf fámennur, en harðskeyttur hópur danskra manna út á síðasta hausti kverið Fakta om de islandske hándskrifter, og var þar gefið freklega í skyn, að handrit Landsbókasafns væru í hinni mestu vanhirðu og hefðu lítið verið könnuð. Ég mótmælti þegar í dagblöðum Reykja- víkur þessum ummælum, og voru þau að nokkru þýdd og birt í dönskum blöðum. Frú Inger Larsen kom til Islands skömmu síðar ásamt tveimur myndatökumönnum frá danska sjónvarpinu. Voru þá m. a. teknar myndir í handritasal safnsins og rætt við starfsmenn þess og forstöðumann Handritastofnunar íslands. Loks er þess að minnast, að hópur danskra þingmanna, er hér var staddur á þingi Norðurlandaráðs í febrúar s.L, heimsótti einn daginn Safnahúsið og skoðaði handritasalinn og hina nýju við- gerðarstofu. Ástæðulaust er að rekja hér gang handritamálsins, en úr því hefur nú rætzt eftir beztu vonum. Danska þj óðþingið samþykkti frumvarpið frá 1961 óbreytt 19. maí í vor með 104 atkvæðum gegn 58, og tókst ekki að fá tilskilinn fjölda þingmanna til að æskja þjóðaratkvæðagreiðslu um málið. Þótt málinu hafi nú verið skotið til dómstól- anna, væntum vér, að á því muni enn sannast hið fornkveðna, að bíðendur eigi byr, en bráðir andróða. Landsbókasafn vottar danska þinginu og dönsku þjóðinni virðingu sina og þökk og minnist um leið góðrar samvinnu við Dani og danskar menntastofnanir á liðnum árum. Því verður ekki gleymt, að Carl Christian Rafn varð aðalhvatamaður að stofnun Landsbókasafns fyrir tæpum 150 árum og ótrauðasti stuðningsmaður þess fyrstu ára- tugina, en í fyrrahaust, þegar handritastríðið stóð sem hæst, var liðin öld frá and- láti hans. Hér skulu rifjuð upp orð þau, er hann ritaði stjórn Reiersenske sjóðsins 10. marz 1863, en þar er stjórnin hvött til að styrkja Landsbókasafnið. Þótt öldin sé nú önnur, getum vér enn birt (í þýðingu) þessi orð Rafns og minnzt með því bæði hans og allra þeirra Dana, er borið hafa líkan hug til íslands og íslendinga: „Islendingar hafa endur fyrir löngu lagt svo drjúgan skerf af mörkum til varðveizlu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Árbók Landsbókasafns Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók Landsbókasafns Íslands
https://timarit.is/publication/279

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.