Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1965, Page 92

Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1965, Page 92
92 ÆVIÁGRIP SIGIIVATS GRÍMSSONAR BORGFIRÐINGS aðar bækur, sem Jjá var títt, en ])ó fékk hann enga tilsögn að lesa latínuprent, Jjví móðir hans, sem þó var skarpgáfuð og kunni afar mikið utan bókar, kunni ekki að lesa það prent. En þannig var kennslunni varið, að fyrst var honum sýnt letur á Sjöorðabók- inni gömlu, eftir biskup Jón Vídalín, og gekk það allvel í fyrsta sinn; en Jregar til kom í öðru sinni, þá mundi Sighvatur ekki fyrsta stafinn í öðru orðinu, og fékk hann þá kinnhest hjá móður sinni, en Jrað var sá fyrsti og síðasti, því eftir Jrað mundi hann alla stafina og gat lesið bókina viðstöðulaust eftir bálfan mánuð. Þetta var fyrir jól 1847, en eftir nýárið barst honum í höndur ein opna úr Alþingistíðindum með latínu- prenti, og fór hann Jrá að bera sig að bera Jrá stafi saman við Sjöorðabókina sína og leita uppi, hverir líkastir vóru, og gat Jjannig gizkað á, hverir þeir stafir vóru, sem hann fann engan líkan í eldra prentinu. Þannig smám saman komst hann út úr blaðinu og gat lesið latínustíl um vorið viðstöðulaust. Veturinn eftir fékk hann Eiríks rímur víðförla með hönd Lýðs skálds Jónssonar, og liafði hann þá hið sama ráð, að bera saman við prentið, og vannst það vel. Þannig tók hann hverja skrifaða bók eftir aðra, sem hann á náði, og Jjegar hann var ellefu ára gamall, kom engin sú skrudda fyrir, hversu rambundin og mórauð sem var, að hann ekki læsi viðstöðulaust; og Jjóttu slíkt afbrigði, og dáðust menn að, enda fór honum ekkert fram að lesa eftir Jjað. En nú fór að vakna hjá honum sterk löngun til að skrifa, en til Jjess vóru engin ráð; og Jió margmennt væri á Skaganum, Jjá varð enginn til að rétta honum hjálparhönd með neina tilsögn. Samt fór hann að búa sér til blek úr ýmsum efnum, eftir því sem til fékkst í þann og þann svipinn, stundum úr blásteini (indigói), pottahrími, ljósreyk o. fl., og stundum sníkti hann sér út hj á öðrum eitthvað þess kyns. Þar með reytti hann saman umslög af bréfum, afreikninga, sem eyður vóru á og óskrifað, en stundum varð hann að skera sér penna úr fjöðrum, og stundum gat hann fengið hjá öðrum stál- penna, helzt brúkaða, og var hann þegar ráðkænn að brýna þá upp og nota síðan, en ýmsar hafði hann forskriftirnar. Eina upphafsstafi fékk hann hjá Sigurði Lynge, ágætum skrifara, en hann myndaði líka stafi eftir ýmsum öðrum höndum, sem hann sá, og spillti það höndinni, því allt var tilsagnarlaust, en sjálfur vandi hann sig strax á að hafa línurétt og vel sett. Auk þess vandist liann við innivinnu, helzt tóskap, sem móðir hans stundaði mjög. Þegar hann var á tólfta ári, var hann látin fara um sumartímann vestur í Dali og var Jjar smaladrengur, en um haustið fór hann suður aftur. Þannig var hann á sumrum í sveit, meðan móðir lians lifði, fyrstu árin sem smali, en síðar við heyvinnu, en var hjá henni á vetrum, bæði við handvinnu og á síðustu árum við sjóróðra að vorinu. Jafnan las hann sögur á kvöldvökum og varð þannig mörgu kunnur af því tagi. Mest vóru |iað útlendar sögur, Jjví annars var ])á ekki kostur, en Jró hneigðist hugur hans snemma að öllu því, er snerti ísland á einhvern hátt, en ómögulegt var að fá nokkra skímu, sem gæti glætt ])á löngun. Þó var hann farinn að afrita nokkuð af íslendinga- sögum fyrir sjálfan sig, meðan hann var á Akranesi, eftir því sem hann gat fengið þær til láns, en þá vóru ekki til af þeim nema örfá eintök, og hinar eldri útgáfur, sem hann skrifaði sumar upp.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Árbók Landsbókasafns Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Landsbókasafns Íslands
https://timarit.is/publication/279

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.