Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1951, Blaðsíða 13

Frjáls verslun - 01.10.1951, Blaðsíða 13
Verzlunin Olympia í nýjum húsakynnum Verzlunin Olympia, er áð- ur var til húsa á Vesturgötu 11 hér í bæ, hefur nú flutl í ný og glæsileg húsakynni á Laugaveg 26. Var verzlun- in opnuð í hinuin nýju húsa- kynnum laugardaginn 3. nóv. s.l. Eigendur verzlunar- innar eru eins og áður þeir Hjörtur Jónsson og Jón Hjartarson faðir hans og hafa þeir starfrækt hana í 13 ár. Stofnsettu þeir verzl- unina 5. nóv. 1938 á Vest- urgötu 11 og hefur hún verið þar til húsa, unz hún flultist í nýju húsakynnin. Á hinum nýja stað liefur verzluninni verið haganlega komið fyrir eins og sjá má h'tilsháttar af meðfylgjandi mynd. Verzlunin er mjög björt yfir að líta, útbúnaður allur og innrétting eins og bezt verður á kosið, aðgengilegur og með nýtízku sniði. Olympía hefur ávallt verið sérverzlun fyrir vefnað- arvörur, en vegna þess hve hún hafði yfir litlu hús- næði að ráða á fyrri staðnum, var ekki verzlað þar með tilbúinn fatnað. En vegna hins aukna húsrýmis á nýja staðnum verður nú einnig framvegis á boðstól- Ljósm.: Vignir. um tilbúinn fatnaður og annað það, er fullkomin vefnaðarvöruverzlun þarf að hafa á boðstólum. Verzlunin Olympia hefur notið vinsælda meðal í- búa höfuðborgarinnar og verið þekkt fyrir fjlöbreytt vöruúrval, og vafalaust flytja vinsældirnar með henni á nýja staðinn. „Frjáls verzlun“ árnar eigendum allra heilla með nýja staðinn. Myndin sýnir liluta af verzluninni í nýju húsakynnunum að Laugavegi 26. eins ríkis hafi sagt í lok fyrri heimsstyrjaldarinnar. Og orð þessi komu enn áþreifanlegra í Ijós í síðari heimsstýrjöldinni. Heimsframleiðslan á olíu nam á s.l. ári 523 millj. tonn, sem er nýtt framleiðslumet, og framleiddi Ensk- íranska olíufélagið yfir 20 millj. tonn af heildarmagn- inu. Olíuframleiðsla Sovétríkjanna nam sama ár að- eins 38 millj. tonn, og er því skiljanlegt, að þau líti hýru auga til írönsku olíunnar. Sá ótti hefur knúð Bandaríkin til að styðja að nokkru leyti þjóðnýtingu Irans á olíunni. íran hefur ekki sjálft bolmagn til að hagnýta á eigin spýtur olíuna og selja hana á heimsmarkaðinum, og verður því að leita aðstoðar erlendra manna og olíufélaga. Olíusérfræðingar víða í Evrópu hafa boðið stjórn írans þjónustu sína, en ennþá hefur ekki tek- izt að selja neitt magn af olíunni á heimcmarkaðinum. Allt er enn á huldu hver munu verða úrslit olíudeil- unnar. Unnið hefur verið að því að reyna að leysa deiluna á bak við tjöldin, eftir að deiluaðilar hættu að talast við og samningsviðræður hættu. En óneitanlega virðast Bretar hafa beðið lægri hlut í fyrri hálfleik olíudeilunnar, hvernig svo sem sá síð- ari fer. FRJÁLS VERZLUN 137

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.