Frjáls verslun - 01.10.1951, Blaðsíða 18
ekki miðað við pyrigju fárra efnamanna, heldur við
hæfi aljiýðumanna og þó fullnægt fyllstu kröfum um
afköstu og endingu.
Colston hefur einhverntíma sagt, „að þeir, sem leiti
skemmtana á flóttanum frá störfum sínum, séu á rangri
hillu“. Hann hefur sjálfur liaft óskipta ánægju af starfi
sínu, enda séð hag sínum vel borgið. Engu að síður
hefur hann haft affarasæl rkijrli af mörgum málum,
sem legið hafa fyrir utan hinn daglega verkahring
hans. Má þar fyrst og fremst nefna störf hans í þágu
brezku þjóðarinnar á ófriðarárunum, en fyrir þau var
hann aðlaður. Hann hefur og átt sæti í nefnd þeirri,
Skóbú5 Reykjavíkur 30 ára
Framh. af bls. 139.
margir eldri Reykvíkingar þekkja. Svo hefur Sigurður
Halldórsson verið við verzlunina rösk 10 ár. Hann er
nú verzlunarstjóri, afburða duglegur og trúr maður.
Að lokum svo þetta. Er ekki þó nokkur munur á
því að afgreiða karl og konu með skófatnað?
— Óli bro sir við og segir: Þessu er auðvelt að svara.
Það er hægt að afgreiða 10 karlmenn á sama tíma og
verið er að afgreiða eina eða tvær konur. Við förum
svo ekki frekar út í þá sálma hér.
„Frjáls verzlun" óskar Skóbúð Reykjavíkur og eig-
anda hennar, Óla J. Ólasyni, góðs brautargengis á
komandi árum.
.142
er Bretar skipuðu til þess að auka dollara-útflutning
sinn. Þá hefur hann einnig vakandi áhuga fyrir al-
þjóðamálum, enda má segja, að Sir Charles sé mjög
táknrænn fulltrúi fyrir hið svonefnda „indurtrial diplo-
macy“, sem komið hefur fram á sjónarsviðið í síðari
heimsstyrjöldinni og eftir hana. Menn á borð við t. d.
Paul Hoffman, sem ríkisstjórnirnar hafa gripið til, til
þess að leysa þjóðleg og alþjóðleg vandamál vegna
mikillar hagnýtrar reynslu þeirra og ‘skipulagshæfi-
leika. — En þrátt fyrir velgengni og mikinn frama er
Sir Charles yfirlætislaus maður og sagður kunna bezt
við sig með veiðistöngina sína við einhverja laxána.
Hvað fá kfngar í kaup?
Framh. af bls. 140.
5 milljónum króna á ári. Danakóngur hefur í árslaun
3,6 milljón kr. Ekkjudrottningin móðir hans fær 650
þúsuhd og Knútur bróðir hans 330 þúsund kr. Friðrik
kóngur hefur fjórar hallir til umráða og eitt sumar-
hús. Sagt er þó, að hann kunni bezt við sig í smá sum-
arhúsi, sem hann á í dönsku skógunum. Þar svarar
hann sjálfur í síma, ryksugar fyrir konuna sína, og hún
vaskar upp. Svíakóngur hefur um 3,2 milljónir kr. árs-
laun. Hákon Noregskóngur er í hópi lágtekjumanna.
Hann hefur um 1,8 milljón kr. á ári, en Ólafui ríkis-
arfi er hálfdrættingur á móti honum.
Kóngar eru sem sagt sæmilega launaðir, en þó mun
það yfirleitt vera skoðun þegna þeirra, að þeir séu
ekki oflaunaðir, og þrátt fyrir launin lifa þeir margir
óbrotnu lífi og börn þeirra fá svipað uppeldi og börn
annarra borgara.
FRJÁLS VERZLUN