Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1951, Blaðsíða 16

Frjáls verslun - 01.10.1951, Blaðsíða 16
CLZf/ i heimi: Hvað fá kóngar í kanp? Þrátt f’yrir byltingar og umrót tuttugustu aldarinnar sitja enn sjö konungsættir að ríkjum í Evrópu. Vald þeirra er að vísu orðið lítið, en vinsælda njóta þær meðal þegna sinna. Konungar þurfa á tekjum að halda eins og aðrir, og þeim mun meiri, sem staða þeirra krefst íburðar, og oft er ætlazt til, að þeir láti fé af hendi rakna til mannúðarmála og almannaþarfa. Á síðastliðnu ári voru konungsfjölskyldunum sjö greiddir samtals um 5 milljónir dollara, eða um 80 milljónir íslenzkra króna, úr viðkomandi ríkissjóðum. Brezka konungsfjölskyldan er kauphæst. Árslaun henn- ar námu um 40 milljónum ísl. króna. Auk þess hefur hún miklar tekjur af eignum sínum. Bretakóngur hef- ur nú í árslaun um 20 milljónir króna. Það virðast sæmileg laun, en hann hefur líka marga á sínu fram- færi. Um helmingur launanna fer í kaup til um 2000 starfemanna og embættismanna, sem eru beint í þjón- ustu hans. Svo mun viðhald og rekstur hinna mörgu halla vera mjög kostnaðarsamur, því að rikissjóð- urinn er nákvæmur með öll reikningsskil í þeim efn- um. Greiðir ríkissjóður Breta t. d. þvott á gluggum Buckinghamhallar að utan, en kóngur greiðir þvott og viðhald þeirra að innanverðu! Árið 1937 voru bú- Gcorg Bretakonungur og Elíhabet drottning. Júlíana Hollandsdrottninfi: og Burnhard prins, maður hennar. reikningar Bretakonungs síðast birtir. Greiddi hann þá m. a. um 220 þúsund kr. í þvotta, 800 þús. í hita og 1 jós, 600 þús. í vín og drykki og 1,2 milljón króna fyrir bílskúra, hesthús ofl. En kóngur hefur líka talsverðar aukatekjur. Árlega eru um 1000 fuglar skotnir á veiði- löndum konungs, og mun hann fá um 10 skildinga fyrir stykkið. Einnig á hann marga góða veðreiðahesta og mun árlega hafa um 500 þús kr. í tekjur af þeim. Þá á kóngur og mikið af löndum og verðbréfum, verðmæt listasöfn og frímerkjasafn, sem metið er á 1,5 milljón- ir dollara. Og svo er það, eem ekki er minnst um vert, að hann er skattfrjáls. Viktoría drottning var skatt- skyld, greiddi 5% í tekjuskatt. Játvarður VII. fékk skattfrelsi. í fyrri heimsstyrjöldinni greiddi Bretakon- ungur aftur skatta. En þegar farið var að margfalda skattana í Bretlandi eins og víðar, var kóngi nóg boðið og fékk aftur skattfrelsi. Aðrir í brezku konungsfjöl- skyldunni hafa þessar árstekjur: María ekkjudrottning um 3,2 milljónir króna, Elísabet prinsessa 1,7 millj- ónir og maki hennar, Filipus hertogi, tæpa hálfa millj. krónur. Hertoginn af Gloucester 1,6 milljón og Margrét prinsessa um 14 milljón krónur. Ekkja hertogans af Kent fær aðeins rúmar 16 þús. kr., og Játvarður fyrr- verandi kóngur ekki túskilding; en hann mun þó samt vera efnamaður. Næst hæst að tekjum er hollenzka konungsf jölskyld- an. Júlíana drottning mun hafa um 4 milljónir kr. á ári og Bernhard maður hennar röskar 800 þús. kr. Auk þess eiga bau stóra hluti í hollenzkum olíufélögum og verzlunarfélögum, en hafa þó orðið fyrir talsverðu eignatjóni í styrjöldinni og þegar nýlendurnar hafa gengið undan hollenzku krúnunni. Belgíska kóngsfjölskyldan býr og við sæmileg kjör. Hefur hún um 8 milljónir króna á ári. Nokkru lægri eru tekjur grísku kóngsfjölskyldunnar, sem munu nema Framh. á bls. 142. 140 FRJÁÍLS VERZIUN

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.