Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1951, Blaðsíða 21

Frjáls verslun - 01.10.1951, Blaðsíða 21
fyrst hjá Brydesverzlun í Reykjavík, og síðar hjá föður- bróður sínum, Pálma Péturssyni, kaupmanni á Sauðár- króki. Eftir það gerðist hann bóndi í tvö ár og bjó að Hofi á Höfðaströnd. Lengst af bjó Eggert hér í Reykjavík, en þó bjó hann í Innri-Njarðvík og Vest- mannaeyjum í nokkur ár. Hann hafði mörg járn í eldinum um dagana. Fékkst við hrossaútflutning, bú- skap, verzlun, bátasmíðar, útgerð og fiskiðnað. Um- boðsmaður H.f. Shell á Islandi í Vestmannaeyjum var hann á árunum 1930—39 og rak þar jafnframt tals- verða útgerð. Árið 1939 byggði hann eitt stærsta og fullkomnasta hraðfrystihús landsins og starfrækti jafnan síðan. Auk þess starfrækti hann hrossaræktarkynbótarbú að Kirkjubæ á Rangárvöllum. Lét hann landbúnaðar- mál mikið til sín taka og hafði ákveðnar fyrirætlanir í þeim málum. Eggert var maður glæsilegur að vallarsýn og fríður sýnum. Hann gerði miklar kröfur til sjálfs sin, var heill maður og falslaus. Kvæntur var hann Elínu Sigmundsdóttur og lifir hún mann sinn. Áttu þau tvær dætur barna. Jörgen Þórðarson fyrrum kaupmaður andaðist 30. sept. s.l. Hann var fæddur 6. sept. 1878 að Hliði á Álftanesi, sonur hjónanna Þórðar Guðmundssonar og Margrétar Ásgrímsdóttur. Ungur byrjaði Jörgen að vinna fyrir sér, svo sem títt var á þeim tímum, og starfaði m. a. hjá skáld- inu og bóndanum Grími Thomsen á Bessastöðum. Jörgen gerðist seinna starfsmaður við hina umsvifa- miklu verzlun H. Th. A. Thomsen hér í bæ, er síðar var nefnd Thomsens Magasin. Veitti hann forstöðu vínfanga- og gosdrykkjadeild þeirrar verzlunar um langt skeið. Sína eigin matvöruverzlun stofnaði hann við Ing- ólfsstræti, en flutti síðar að Bergstaðastræti, og starf- rækti þá verzlun með árvekni og dugnaði í mörg ár. Eftir að liann hætti sjálfstæðum verzlunarrekstri, vann hann að skrifstofu- og verzlunarstörfum hjá ýmsum fyrirtækjum hér í bæ. Mun hann alls staðar hafa á- unnið sér traust húsbænda sinna fyrir áreiðanleik, vandvirkni og starfslipurð. Hann var maður söngelsk- ur og tók virkan þátt í sönglífi bæjarins hér fyrrum. Jörgen var tvíkvæntur, hét fyrri kona hans Jóhanna Eiríksdóttir, en seinni konan Oddrún Sveinsdóttir, og eru þær báðar látnar. Eignaðist Jörgen fjögr.r börn með fyrri konu sinni, en fimm með þeirri seinni. Eysteinn Biarnason kaupmaSur andaðist 5. okt. s.l. Hann var fæddur 26. júní 1902 hér í Reykja- vík. Voru foreldrar hans Bjarni Jónsson alþingism. frá Vogi og fyrri kona hans, Guðrún Þoreteins- dóttir frá Álfgeirsvöllum. Eysteinn ólst upp hjá móð- urfrænda sínum, Pálma Péturssyni kaupmanni á Sauðárkróki, og Helgu Guðjónsdóttur konu hans lians. Sleit hann aldrei sam- vistum við fósturforeldra sína meðan þau lifðu. Hann lauk námi við Verzlunarskóla Islands vorið 1920 og fór þá að vinna við verzlun fóstra síns. Haustið 1922 sigldi 'hann til Þýzkalands og Danmerkur og stundaði þar framhaldsnám í tvö ár. Eftir lát fósturforeldra sinna tók Eysteinn við verzluninni og starfrækti til dauðadags. Eysteinn gegndi mörgum trúnaðar- og félagsmála- störfum heima í héraði. Hann var forseti bæjarstjórn- ar Sauðárkróks, eftir að kauptúnið öðlaðist bæjar- réttindi. Formaður og reikningshaldari Sparisjóðs Sauðárkróks var hann til dauðadags. Varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Skagafirði var hann, svo og formaður miðstjórnar flokksins í héraðinu. Eysteinn var að eðlisfari fremur hlédrægur, en liann var samvinnuþýður og góður félagsmaður, sem ekki skoraðist undan störfum, sem nauðsynlega þurfti að vinna. Hann var greindur maður og glöggskyggn, hag- sýnn og traustur, og fastur fyrir ef því var að skipta. Drengska])armaður var hann og prúðmenni mikið. Hann var starfsmaður mikill, en hafði þó ávallt tíma til að hlýða á mál manna og greiða úr vandræðum þeirra, er til hans leituðu. Kvæntur var hann Margréti, dóttur Hemmerts verzl- unarstjóra á Skagaströnd, og lifir hún mann sinn. Eignuðust þau 3 dætur barna. FRJÁLSVERZLUN 145

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.