Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1952, Page 3

Frjáls verslun - 01.02.1952, Page 3
við önnur ráðuneyti, einkum viðskii)tamálaráðuneytið og atvinnumálaráðuneytið, og Fjárhagsráð) og fylgist með framkvæmd þeirra, og hefur auk þess með hönd- um ýmis konar fyrirgreiðslur í sambandi við viðskipta- mál. Hefur því þótl eðlilegt að viðskiptadeildin ann- aðist einnig útflutningseftirlitið. Viðskiptadeildin veitir nú útboðsleyfi og útflutnings- leyfi fyrir öllum íslenzkum afurðum, sem seldar eru úr landi, nema saltsíld og ennfremur ísuðum fiski, er togararnir flytja út. Utflutning saltsíldar hefur síldar- útvegsnefnd með höndum, og eftirlit með ísfiskút- flutningnum hefur Félag íslenzkra botnvörpuskipaeig- enda annazt fyrir útflutningsyfirvöldin. Ennfremur hefur Sölusamband íslenzkra fiskframleiðenda að mestu leyti haft frjálsar hendur um sölu á saltfiskin- um. Eru útflutningsleyfi fyrir saltfiski yfirleitt gefin ú't eftir því sem S. 1. F. óskar. Útboðsleyfi eru venjulega gefin munnlega, en ekki má afskipa neinni íslenzkri vöru nema fyrir hendi sé skriflegt leyfi viðskiptadeildarinnar, að undantekinni saltsíld og ísuðum fi=ki, sem fluttur er út í togurum. Hin skriflegu útflutningsleyfi gilda oftast einn til tvo mánuði, og er þar greint magn, vörutegund, verð vörunnar, tegund gjaldeyris, sem fyrir hana á að koma, til hvaða lands hún á að fara og í hvaða mánuði. Fjöldi veitlra útflutningsleyfa hefur verið sem hér segir síðustu þrjú árin: 1949: 734 leyfi 1950: 921 „ 1951: 1211 „ Hvert leyfi tekur oft til margra vörusendinga. Eitt ])ýðingarmesta atriðið í sambandi við útflutn- ingseftirlilið er verð-eftirlitið, þ. e. að ákveða lág- marksútflutningsverð á hverri vörutegund á hverjum líma. Slíkt kemur þó ekki til greina um ísfisk. sem seldur er á ui)])boðum erlendis. Ekki er verðeftirlits heldur þörf, þar sem um samtök allra útflytjenda er að ræða, eins og varðandi saltsíldina og saltfiskinn, enda eru þær vörur og markaðir þeirra þannig, að verðeft- irlit með þeim, sem að nokkru haldi kæmi. yrði mjög erfitt í framkvæmd. Svipað gildir um hraðfrvsla fisk- inn. Verðeftirlitið hefur aðallega tvennskonar tilgang: Það skapar aðhald fyrir útflytjendur um að skila til bankanna öllum gjaldeyrinum fyrir hina útfluttu vöru, og auk þess, — og er það aðallilgangui inn, — er því ætlað að koma í veg fyrir það, að útflytjendur bjóði niður verðið hver fyrir öðrum. Lágmarksverð hinna ýmsu vörutegunda er að sjálf- sögðu stöðugum breytingum undiror|)ið vegna verð- sveiflna á erlendum markaði. Annað sjónarmið, sem stundum þarf að taka tillit til í sambandi við veitingu útflutningsleyfa, er það, hvort innanlandsþarfir geri hömlur á útflutningi ein- hverrar ákveðinnar vörutegundar nauðsynlegar. Sem dæmi má nefna, að undanfarin ár hefur fram- leiðsla síldarmjöls verið mjög lítil vegna aflabrests á síldveiðunum, og hefur því um tíma að haustinu til verið stöðvaður útflutningur síldarmjöls samkvæmt tilmælum landbúnaðarráðuneytisins, meðan verið var að ganga úr skugga um það, hvort bændur hefðu tryggt sér nægilegan fóðurbæti. Byggist slík útflulningstak- mörkun á lögum nr. 58, 28. janúar 1935, þar sem heim- ilað er „að banna eða takmarka útflutning á síldar- mjöli úr landinu, ef nauðsyn þykir vegna fóðurskorts.“ Þessara takmarkana ætti nú ekki að vera þörf lengur, þar sem fiskimjölsverksmiðjur hafa nú risið hver á fætur annarri mjög víða um landið, og venjulega er verið að framleiða mjöl úr beinum, síld, karfa eða öðrum fiski einhvers staðar á landinu allan ársins hring. Auk þess er Síldarverksmiðjum ríkisins skvlt, samkvæmt lögum frá 1938 „að selja samvinnufélögum, bæjarfélögum, hreppsfélögum og búnaðarfélögum það af síldarmjöli, sem slík félög ])anta fyrir 30. septem- ber ár hvert.“ Ætti því að vera lítil hætla á því, að ekki verði nóg mjöl til innanlandsnotkunar, þó að ekki sé beitt almennu útflutningsbanni á síldarmjöli á haustin. Aðrar vörur, sem þurft hefur að takmarka útflutn- ing á vegna innanlandsmarkaðarins, eru t.d. ull, kjöt og beitusíld. Síðustu árin hefur framleiðsla úr íslenzkri ull verið mikil fyrir innanlandsmarkað og hafa því út- flutningsleyfi fyrir ull verið veitt með nokkurri var- úð. Hefur lítið verið flutt út af ullinni nema lélegustu gæðaflokkarnir. Fyrir dilkakjöt hefur undanfarið fengizt hærra verð á erlendum markaði en hér heima, en ekki hefur þó þótt fært að leyfa útflutning á því nema að takmörk- uðu leyti. Utflutningur beitusildar hefur stundum verið stöðv- aður eða takmarkaður um slundarsakir, samkvæmt til- lögum beitunefndar, þegar talin hefur verið hætta á, að ekki yrði næg beita fyrir veiðiflotann. Þriðja atriðið, sem hafa verður hliðsjón af í sam- bandi við útflutningsleyfin, eru milliríkjasamningar um viðskipti, einkum þeir jafnvirðiskaupasamningar, sem Island hefur og hefur haft við nokkur lönd und- anfarin ár (t. d. við Pólland. Tékkóslóvakíu, Spán o. fl. lönd). I jafnvirðiskaupasamningum eru venjulega ákvæði um það, hve mikið af hverri vörutegund megi selja frá hvoru samningslandinu til hins, og er oftast nær nauðsynlegt að gæta þess, að ekki fari meira en FRJÁLS VERZLUN 3

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.