Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1952, Qupperneq 9

Frjáls verslun - 01.02.1952, Qupperneq 9
stöður höfundar, en víst er það, að Natan hefur ekki verið eins og fólk er flest, svo sem það er kallað. En Natan (og Fjárdráps-Pétur) eru myrtir á Illugastöð- um á Vatnsnesi aðfaranótt 13. marz 1828. Höfundur gerir og grein fyrir morðingjunum Friðriki, Agnesi og Sigríði, og kemst að þeirri, að þvi er virðist alveg réttu, niðurstöðu, að hvöt þeirri hafi verið ágirnd á peningum þeim, sem þeir hugðu Natan eiga, en ást eða afhrýðisemi hafi þar engan hlut átt að máli, eins og almánnarómurinn liafði smíðað. Og leiðréttir höf. einnig ýmislegt fleira í sambandi við „personæ drama- tis“. Fer það að venju, að munnmæli reynast æðilé- leg heimild. Það er gömul saga, að skrifa skuli glæpi og glæpa- hneigð manna á reikning þjóðfélagsins, og virðist höf. vera þeirri hugsun nálægur í lok greinargerðar sinnar um morðið á Natani og morðingjana. Sjálfsagt má stundum kenna þjóðfélagsháttum að einhverju levti um glæpi og glæpahneigð, en of mikið sýnist vera að skulda bjóðfélagið um allt slíkl. Ætli glæpahneigðin gangi ekki að einhverju leyti að erfðum? Og ætli þjóð- félaginu verði með réltu kennt um alla glæpi, sem menn fremja án nokkurrar ytri nauðsynjar? Og mundi það vera heppilegt að styrkja brotamenn í þeirri trú, að eiginlega sé þá ekki að saka um glæpi, sem þeir fremja, heldur mannfélag það, sem þeir lifa í? í lok ritgerðarinnar víkur höf. nokkuð kuldalega að þeim mönnum, sem töldu sig hafa fundið dysjar morð- ingjanna tveggja, kallar þá menn „auðlrúarjöfra“, sem farið hafi eftir „draumum“ einhverra. Á þetta skal að vísu enginn dómur lagður, en það minnir mig, að les- ið hafi ég, að ég held í Lesbók Morgunhlaðsins, skýrslu um aðdragandann að beinaleitinni og um það, að stað- ið hafi heima tilvísanir þær, sem laldar voru fengnar með dulrænum hætti. Og víst er um það, að leifarnar fundu't þar sem til var vísað. Ef einhver maður heil- agrar kirkju hefði fengið samskonar vitrun um dysj- arnar, þá hefði víst ekki staðið á lofgjörð um hann og þakkir fyrir opinberunina. En sle|ipum þessu. Fræði- legt gildi ritgerðarinnar raskast og ekkert fyrir þetta, er höfundi var óþarft að kasta kaldyrðum að þeim, sem átt hafa Iþátl í fundi leifa þeirra Friðriks og Agnesar. Það hefur þótt við brenna, að fróðleikssafnarar vor- ir hafi lítt gætt þess að nota beztu heimildirnar, dóma, skjöl, þingbækur og aðrar embættisbækur. í stað þess hafa þeir skráð munnmæli og byggðasagnir, sem Jieir virðast venjulega hafa talið fullgóðar heimildir. Að vísu má einatt afsaka þá með því, að hinar betri heim- ildir hafa ekki verið þeim jafn auðfengnar og mönn- um nú er, vegna þess, að þær voru þá dreifðar um land allt, en nú eru þær saman komnar í söfnum og því auðnotaðar hverjum læsum manni, sem á kost á að leita til safnanna. Á vinnubrögðum fróðleiksmann- anna margra, hvar sem þeir eru í flokki, eru nú orðn- ar mikilsverðar breytingar. Flestir þeirra eru nú tekn- ir að nota beztu heimildirnar. Hitt er annað mál, hvern- ig úr þeim er unnið. Það er auðvitað misjafnlega gerl. Prófessor Guðbrandur notar allar þær heimildir, sem beztar má telja og nefndar voru. Og ekki verður annað séð, en að hann vinni úr þeim með skynsamlegri gagn- rýni, tengi hagsmiðlega saman atburði og geri þeim mönnum, sem mest koma við sögu, svo góð skil sem kostur er, skýri svo vel sem unnt er hvatir þeirra og markmið með gerðum þeirra. Auðvitað er oft ekki unnt að greiða úr slíku með nokkurri vissu, en sagnritara er vitanlega leyfilegt að greina slíkt eftir því sem hann hyggur næst sanni. Framsetning öll er svo ljós, að hverjum ineðalgreindum manni, sem annars liefur nokkurn áhuga eða gaman af þeim fraiðum, hlýtur bókin að verða jafnframt beinlínis skemmtilestur. Les- andinn fær líka marga fræðslu um aldarfar þess líma, er atburðirnir gerast á, enda spegla lög, dómar, afbrot og löggæzla flestu hetur þjóðlífið. Lögin sýna kröfur löggjafans og óskir um hegðun manna, en dómar og löggæzla sýnir hlýðni mannfólksins við lögin og hvern- ig verðir laganna gegna skyldum sínum. Menn með kostum sínum og göllum og Jijóðlífshæltir standa þeim glöggt fyrir hugskotssjónum, sem ritgerðirnar lesa með sæmilegri athygli. Og sá er auðvitað tilgangur höfund- ar og allra annarra sem, taka sér fyrir hendur lýsingu manna og atburða Iiðins tíma, þó að misjafnlega tak- izt. Höfundur hefur ekki Jjjálfandi laganám að baki sér og hefur ekki stundað réttarsögu íslands framar en samning ritgerða þessara veitti efni til. Má og sumstað- ar i?já þess merki, að höfundur hefur hvorki almenna lögfræðiþjálfun né Jiá þekkingu í íslenzkri réttarsögu, sem betra hefði verið að hafa en vera án, alveg eins og hann tekur sjálfur fram í formálanum. En sannast að segja ber þó minna á þekkingarskorti í þessum efn- um en búast mátti við, og vel mundi höfundi hafa látið lögfræðinám og sérstaklega réltarsögu, eins og reyndar öllum greindum mönnum gerir, ef þeir festa hugann sæmilega við það. Og Jiað hygg ég, að leitun sé á Jieim ólöglærðum manni, sem jafnvel eða betur hefði komizt frá lýsingu þeirra brotamála, sem í rit- gerðum hans sjö greinir. Og ber ekki heldur að skilja Jietta svo, að |)ví sé haldið fram, að við, sem eigum að heita löglærðir, hefðum að öllu samantöldu gert betur, þó að.við hefðum sennilega greitt nokkur atriði betur, en svo í staðinn líklega farið lakar með önnur. Utgáfan er vönduð að öllum ytra frágangi. FRJÁLS VERZLUN 9

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.