Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1952, Qupperneq 10

Frjáls verslun - 01.02.1952, Qupperneq 10
Nathan & Olsen h.f. O/ •• • / * cTjorutiu ara Þáttaskil í íslenzkri verzlunarsögu. Brátt er liðin hart nær hálf öld síðan umboðs- og stórsala landsmanna fluttist inn í landið sjálft. Fyrir þann tíma var þessi grein verzlunarinnar ýmist rekin af selstöðuverzlunum eða af sjálfstæðum kaupmönn- um, sem flestir hverjir nutu lánstrausts hjá umboðs- kaupmönnum í Kaupmannahöfn og Leith og keyptu þess vegna vörur sínar hjá þeim, og seldu svo aftur úlflutningsafurðir sínar fyrir milligöngu þeirra. Grundvöllur fyrir stofnun slíkrar umboðs- og stór- söluverzlunar hér á landi var eiginlega ekki fyrir hendi fyr en Island komst í símairamband við útlönd árið 1906. Þá hefst í raun og veru nýtt tímabil í íslenzkri verzlunarsögu. Verzlunin flyzt algjörlega inn í land- ið sjálft og að mestu yfir á hendur hérlendra manna. Um sama leyti verða mikil þáttaskil í alvinnusögu landsmanna, þjóðin vaknar til meðvitundar um mátt sinn og megin og hér hefjast margs konar framkvæmd- ir í framfaraátt. Fyrslir íslenzkra manna til þess að stofna hér um- boðs- og heildverzlanir voru Ólafur Johnson, Garðar Aðsetur firmaus 1314—15 var í Austurstræti 9, þar sem uú er hús Egrils Jaeobsen h.f. Gíslason og Hallgrímur Benediktsson, og í kjölfar þeirra komu svo ýmsir aðrir. Lagt á brattann. Eitt þeirra fyrirtækja, sem átt hefur stóran þátt í mótun þessarar verzlunargreinar hér á landi, fyllti fertugasta tuginn 1. janúar s.l. Firmað Nathan & Olsen er istofnað þann dag árið 1912 af þeim Fritz Nathan, er hafði starfrækt um- boðsverzlun hér í bæ, aðallega með smávörur, frá því í marzmánuði 1907, og Carli Olsen. Olsen kom hingað til lands 1909 til þess að taka að sér yfir- stjórn verzlana Brydes, en þær voru þá fimm að tölu. Hafði hann á hendi verzlunarstjórn fyrir Bryde hátt á þriðja ár, eða þar til í desember 1911, en þá var hann farinn að undirbúa slofnun fyrirtækisins Nathan & Olsen. Fritz Nathan hafði á þeim árum. er hann starf- rækti einn umboðpverzlun sína, náð í umboð fyrir mörg mikilsmetin erlend verzlunarfirmu og verk- smiðjur, og var það góð undirstaða fyrir hið nýstofn- aða fyrirlæki. Það var ekki svo litlum erfiðleikum bundið að hefja verzlunarrekstur í þá daga. í fyrsta lagi voru þau út,- lendu firrnu, sem áður höfðu skipt við umboðskaup- mennina, treg til þess að hefja bein viðskipti, því að þau óttuðust að missa viðskiptin við þá, og í annan stað voru þau smeyk við að is'kipta beint við íslenzku verzlunarstéttina, vegna þess hvað hún var ung að árum og lítt þekkt. Smám saman tókst þó að vinna bug á þessum erfiðleikum. Starlsemin fyrstu árin. Fyrstu tvö árin var firmað til húsa í Hafnarstr.eti 21, þar sem nú er járnvöruverzlun Jes Zimsen. Var nú starfað af alefli við uppbyggingu firmans næstu árin, því að svo má heita að byrjað hafi verið með tvær hendur tómar, því að hvorugur eigendanna átti fé eða 10 FRJ ÁLS VjERZLUN

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.