Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1952, Page 14

Frjáls verslun - 01.02.1952, Page 14
Sr. BJARNI JÖNSSON: STARFIÐ HEFUR SAMEINAST LÍFSÞRÓTTI OG GLEfil Aímœlisþankar um Sigurð Þorsteinsson, skrifstofustjóra, sjötugan. Tignarmikla manndóms tu5. morgunfögur ár og síS, þegar Ingólfs-œttar dyggö yfir fornri lýsti byggÖ. Þegar ég geymi þessi orð í huga mínum eða vitna til þeirra, bregður fyrir mörgum myndum frá hinni gömlu Iieykjavík, og ég vil gefa samþykki mitt þeirri heitstrenging, er segir: Ingólfs menn í Ingólfs staS, allir festum heitiS það: Reisum. upp í anda hans öndvegs súlur föSurlands. Gott er að minnast liðinna daga með þeirri ósk, að ávallt megi vera bjart yfir Reykjavík. Hvernig ætti ég að gleyma morgunbirtunni, heið- ríkjunni á fögrum vordögum, er starffúsir menn heils- uðu uj)prennandi sól og gengu fagnandi til dagsins starfa? Þeir tóku daginn snemma og notuðu vel dags- ins stundir. Það mátti um þá segja: Morgunandinn okkar tíSar örvar framlaks hug. Það var meir horft til starfsins sjálfs en launanna. Frá hinum reyndu starfsmönnum barst hvatningin til bernskunnar og æskunnar. Ég sá, hvernig starfað var, og mig langaði til þess að fá að komast að starfinu. Gleymi ég því aldrei, er ég komst í fiskvinnu niður við Hafnarstræti, var þar 14 stundir þann dag og fékk 7 aura um tímann. Var ég leiður yfir því, að ég skyldi ekki fá eina heila krónu, en aðein,s 98 aura, sem voru taldir mér til tekna í vörureikningi. En ég sætti mig við kaupið, er mér var sagt, að öll byrjun væri erfið, og seinna væri hækkunar von. Eðlilegt var þó, að ég liti upp til þeirra, sem voru svo lánsamir að fá að vera í búð. J^aun þeirra voru ekki há, en þeir nutu hinna miklu réttinda að fá að vera fyrir innan borSiS og selja þeim, sem voru fyrir utan borSiS; selja þeim gráfíkjur fyrir 5 aura og rús- ínur fyrir svipaða u])phæð, og gott var að kynnast þeim, sem seldu vel og létu mig fá minn skerf vel úti látinn. Það voru hátíðlegar stundir, sem ég hlakkaði til, er ég fór vestan úr bæ niður í einhverja búðina, og bauðst til þe=s að fara upp í bæ, inn á heimili búðarmannsins eða „Kontoristans“, og sækja 'kaffi handa honum, og fá svo launin, sem voru hið ljúffenga kaffibrauð, sem hvarf í skyndi niður í vasann og þvínæst í magann, er haldið var heim í glöðu skapi, þó að grimmdarfrost væri og snjórinn kaldur undir sauðskinnsskónum. Mér er í minni, hve gott var að kynnast verzlunar- stéttinni. Man ég frá þeim tímum marga mæta menn innan búðar og utan. Þeir voru trúir starfsmenn, sem undu glaðir við sitt. Aldrei gleymi ég bræðrunum Birni Guðmundssyni múrara og Þorsteini Guðmunds- syni, er starfaði við verzlun Thomsens og síðar varð yfirfiskimatsmaður. Hvernig ætti ég að gleyma Jór- unni systur þeirra, sem á hverri Þorláksmessu kom með jólaköku til barnanna í Mýrarholti? Þegar ég jarðaði Þonstein, fylgdist ég með Klemens Jónssyni ráðherra upp í kirkjugarðinn. Sagði KJemens við mig: „Nú er verið að jarða þann mann, sem með trúu og vönduðu starfi hefur auðgað landið að milljón- um króna.“ Aldrei gleymi ég þeirri tilhlökkun, er ég ásamt systkinum mínum fékk að fara í jólaheimsókn upp í Þorsteinshús í Þingholtsstræti, þar sem Þorsteinn og kona lians, Kristín Gestsdóttir gerðu garðinn frægan. Þangað var gott að koma, þar var gott að vera, hlýtt og vistlegt, og viðtökur hinar beztu hjá foreldrum og börnum þeirra. Þar var hinn einbeitti og dugmikli húsbóndi, og þar var hin milda, elskulega húsmóðir. Friðarbros hennar lýsti því, sem í hjarta hennar bjó, og „líknarstafir léku um varir.“ Þar voru bræðurnir Guðmundur, Sigurður og Ragn- ar, og þar var Ragnheiður systir þeirra. En af hverju dvel ég við þessar minningar? Þetta 14 FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.