Frjáls verslun - 01.02.1952, Qupperneq 18
lítið land, og salan var því of takmörkuð þar, þegar
framleiðslan jókst. Sölumaðurinn Anton Philips varð
nú að finna nýja markaði og þeirra var einungis að
leita utan landamæra Hollands. Hann hafði sérstakan
augastað á hinum vaxandi iðnaði Rínarlandanna, og
ekki leið á löngu unz hann var búinn að tryggja þar
álitlegan markað. Philips lét ekki við svo búið standa.
Hann tók sér ferð á hendur til Frakklands, Spánar,
Ítalíu og Portúgals og aflaði fyrirtækinu nýrra við-
skiptavina í þessum löndum. Þýðingarmesta viðskipta-
vininn fann hann samt á ferð sinni um Rússland fyrir
byltinguna. Þar fékk hann pöntun upp á 50 þúsund
glóðarlampa, sem nota átti í vetrarhöll zarsins í Péturs-
borg. Auk þess komst hann í náin kynni við fjölda
manns víðsvegar um Rússaveldi á ferðum sínum þar,
sem gerðu hjá honum stærri pantanir en haon átti
áður að venjast.
Or vöndu að ráða.
Bræðrunum var það fljótlega ljóst, að ekki var nóg
að framleiða mikið; það varð að selja vöruna. Og til
þess að geta selt hana og, sem þýðingarmest var, að fá
pöntun endurtekna og aukna, þá reið á því að gæði
framleiðslunnar væri alltaf miðuð við háan mæli-
kvarða. Að þessu marki kepptu þeir bræðurnir Anton
og Gerard og unnu þrotlaust að endurbótum og aukn-
ingu framleiðslunnar. Þeir settu á stofn rannsóknar-
og tilraunastofur í þessu augnamiði og fengu duglega
fagmenn sér til aðstoðar. Þetta opnaði aftur á móti
nýja möguleika fyrir verksmiðjuna eins og bezt sézt
af eftirfarandi dæmi úr heimsstyrjöldinni fyrri. Eins
og kunnugt er, þá er gler eitt þýðingarmesta efnið,
isem notað er í ljósaperur. Á þeim tímum var ekki
mögulegt að framleiða það í Hollandi, svo Philips varð
að flytja það inn frá Austurríki og Þýzkalandi. Þegar
markaðurinn lokaðist vegna stríðsins, voru góð ráð
dýr. Ákvörðun var fljótlega tekin um að reisa eigin
glerverksmiðjur, og innan fjögurra mánaða frá því
byrjað var á hinni nýju byggingu voru fyrstu Philips
perurnar tilbúnar fyrir markaðinn framleiddar úr
Philipsgleri.
FjölbreYtni framleiðslunnar.
Árið 1922 dró Gerard Philips sig í hlé, og tók þá Ant-
on einn við yfirstjórn verksmiðjanna. Sífellt var lagt
inn á nýjar brautir í framleiðslunni. Utvarpstæki, kvik-
myndasýningarvélar, röntgentæki, rafmagnsrakvélar,
vísindatæki, rafmagnsheimilistæki og óteljandi aðrir
hlutir birlust nú á markaðnum frá Philips verksnúðj-
unum. Árið 1927 hóf Philips stuttbvlgjuútvarp frá
Eindhoven, sem olli byltingu í útvarpssendingum. Það
ár ávarpaði Wilhelmina drottning þegna sína í Austur-
og Vestur-Indíum í gegnum stuttbylgjuútvarp Phihps
í Eindhoven, en þetta vakti mikla athygli víða um heim.
Margir Islendingar, sem á annað borð hlusta á erlend-
ar útvarpsstöðvar, kannast við útvarpsistöðina í Hil-
versum í Hollandi, eða öllu heldur rödd þulsins, sem
þar kemur oftast fram. Eddy Startz, en svo heitir þessi
18
FRJÁLS VERZLUN