Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1952, Qupperneq 19

Frjáls verslun - 01.02.1952, Qupperneq 19
Starfsmenn Thomsensverzlunar skömmu fyrir aldamót :UVNi'fnamt,r Standandi frá vinstri: Júlíus Max, Ólafur Hjaltested, Einar Árnason, Pétur Biering-, Porsteinn Guðmundsson, Guðmundur Matthíasson, Elis Magnússon, llanncs Thorarensen og Óli F. Ásmunds- son. Sitjandi: Sigurður I»orsteinsson, Samuel Kichter og I»orsteinn Pálsson. skemmtilegi og skraflireifi þulur, byrjaði sem starfs- maður hjá Philips, eu hefur verið hjá ríkinu eftir að það tók við rekstri útvarpsstöðva í Hollandi. Startz spjallar reiprennandi við hlustendur sína á sjö tungu- málum, auk þess, sem hann kann glefsur úr mörgum öðrum málum, þar á meðal íslenzku. Snorri P. Arnar, sem verið hefur umboðsmaður Philips á íslandi síðan 1926, er góður kunningi Startz, en liann lærði nokkrar íslenzkar kveðjur hjá Snorra, sem hann notar svo við útvarpssendingar sínar. t Starfsfólk, sem unir sér vel. Anton Philips var gerður að heiðursdoktor við Hag- fræðiháskólann í Hollandi árið 1928. Sennilega hefur enginn Hollendingur, sem uppi hefur verið á 20. öld- inni, verið jafn víðkunnur og Dr. Philips. Hann hefur reist verksmiðjur í 42 löndum, og við þær starfa um 90 þúsund manns. í Hollandi einu eru starfræktar 20 verksmiðjur og vinna þar yfir 35 þúsund manns. Aldr- ei hefur verið gerð tilraun til verkfalls við Philips verksmiðjurnar utan einu sinni. Var það í síðustu styrjöld og þá gegn Þjóðverjum. Dr. Philips gerði sér jafnan far um að stuðla að velfarnaði starfsfólks síns. Hann setti á stofn eftirlaunasjóð, menningar- og skemmtisjóð, lét hyggja veglegan íþróttaleikvang í Eindhoven, reisti yfir 5000 íbúðarhús, hressingarhæli, hókasöfn og skóla — allt var þetta gert fyrir starfs- fólk Philips verksmiðjanna og fjölskyldur þess. Þegar Dr. Anton Philips lézt í október s.l., 77 ára að aldri, hvarf af sjónarsviðinu einhver gagnmerkasti brautryðjandi stóriðjunnar, sem upj)i hefur verið. Hann setli sér háleitt takmark, sem eingöngu náðist fyrir dugnað, ástundun og þrautseygju ásamt miklum meðfa'ddum hæfileikum. N. S. 19 FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.