Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1952, Qupperneq 22

Frjáls verslun - 01.02.1952, Qupperneq 22
Blaðið hefur komið að máli við nokkra vefnaðar- vörukaupmenn þessa bæjar og spurt þá m.a. um við- horf þeirra til hins frjálsa verðlags, svo og skoðun þeirra á útsölum þeim, sem haldnar hafa verið liér í bæ fyrstu tvo mánuði ársins. Hér á eftir verður í stuttu máli skýrt frá niðurstöðum þeim, sem draga hefur mátt af viðræðum þessum. Verður aðeins stiklað á því helzta rúmsins vegna: Frjáls verzlun og samkeppni skaj>ar jn.a. þau skil- yrði, að öll verzlunarþjónusta verður meira lifandi og viðskiptavinurinn öðlast þau mikilvægu lilunnindi að geta valið og hafnað, allt eftir eigin geðþótla. Aukið vöruframboð þýðir betri þjónustu til handa við:-ki|)ta- vininum, og eftir því sem allt er frjálsara, því meira verður vöruúrvalið, og fólkið á að fá betri vörur fyrir hagkvæmara verð, en það ella hefði fengið. Fólk leitar fyrir sér um verðlag hijina ýmsu vara og kaupir, þar sem því finnst hagkvæmast og ódýrast. Áður en fólk fer að dæma um verð vörunnar, á það að kynna sér gæði og ásigkomulag hennar, t. d. ef um metravöru er að ræða, þá breidd efnisins, svo að eitt- hvað sé nefnt. Utsölur eru ekkert óeðlilegt fyrirbrigði, þótt ókunn- ugir gætu freistast til að halda að svo væri. í frjálsri samkeppni vilja safnast fyrir ýrnsar vörur, bæði árs- tíðarvörur og aðrar vörur, sem of mikið er af og fólk fær leið á, vegna þess að framboðið hefur verið of mikið. Þetta eru í raun og veru ágætis vörur, og þeir, sem hagnýta sér þessi kostakjör, gela drjúgum drýgt laun sín, og fólk, sem hefur litla peninga handa á milli, gerir góð kaujt á útsölum þessum. Skulu hér nefnd nokkur dæmi af handahófi á verði nokkurra vara á útsölu einnar stærstu vefnaðarvöru- verzlunar bæjarins.Herrafrakkar lækkuðu úr kr.650.00 niður í kr. 400,00, lojjapeysur úr kr. 75,00 í kr. 35,00, kvenbolir úr kr. 19,90 i kr. 10,00, kvenkápur, sem áður kostuðu kr. 890,00, kostuðu á útsölunni kr. 400,00, og jafnvel allt niður í kr. 250,00, ullarkven- kjólar voru seldir á hálfvirði eða kr. 200,00, svo að nokkuð sé nefnt. Hjárómaraddir vinstri blaðanna, Alþýðublaðsins og Þjóðviljans, sem aldrei hafa þreytzt á að básúna út til almennings alls konar brigslyrðum um verzlunar- stéttina og reynl að sverta liana á allan hátt, hljóðn- uðu svo að segja með öllu þann tíma, sem útsölurnar stóðu yfir. Það var hyggilegt af þeim að gera svo. Al- menningur lætur ekki glepjast til langframa af gífur- yrðum þessara blaða, þegar hann hefur staðreyndirnar fyrir augunum. Megi lokaorð þessa greinastúfs vera orð stærstu fataverzlunar bæjarins, en þau eru svo: Nú vita allir, að þeir, sem gera bezt innkaupin og selja ódýrast, fá mest viðskijjtin og afla verzlunum sínum mestra vinsælda. Frjáls verzlun leiðir því til betri innkaujia og lækkaðs vöruverðs. Þeir sem ekki fylgja þessari reglu dragast aftur úr og missa af við- skiptunum. Fólk leilar nú fyrir sér og kaupir þar, seni hag- stæðast er að verzla. Á haftaárunum var mikil vöru- ekla, og fólk neyddiít til að kaujia það litla, sem á boðstólum var, þótt því líkaði alls ekki varan. Neyt- endurnir annast miklu betur verðgæzluna, heldur en launaðir embættismenn, ef frjáls innflutningur er fyr- ir hendi. • Hreinlæti og umgengni öll hefur stórfleygt fram hjá velflestum verzlunarfyrirlaakjum bæjarins hin síðustu ár. Sóðaleg og óhrein verzlun fælir frá kaujiendur, það vita kaujjmenn manna bezt. En til þess að halda vel i horfinu, þurfa kaujjmenn sífellt að vera á varðbergi fyrir öllu því sem aflaga fer. Nokkur misbrestur hefur viljað vera á því. Það er ekki nóg að koma verzluninni í nýtízku horf, en láta svo síðan allt reka á reiðann með eðlilegt viðhald og útlit. í þessu sambandi er ekki hægl annað en að benda kaujjmönnum bæjarins á nafnaskilti verzlanna. Þau eru fleslum kaupmönnum til háborinnar skammar. Mjög víða má sjá brotin, óhrein eða máð nafnaskilti í gluggum verzlananna, og fá eru þau ljósaskilti á fram- hliðum verzlunarhúsa sem eru heil. Að maður tali nú ekki um nafnagift sumra verzlana, en það er nú önnur saga. Hér þarf stefnubreyting nauðsynlega að koma til. Þennan trassaskaj) verða kaupmenn að ujjjiræta. Ger- ið nú hreint fyrir ykkar dyrum. Látið mála nafnaskiltin í gluggunum eða á framhlið verzlunarinnar, ef þau eru orðin máð, og umfram allt hafið Ijósaskiltin í lagi. Þau eru öllum til leiðinda, ef aðeins logar á öðr- um helminginum, og eigendunum til lílils sóma. • Blað Sambands smásöluverzlana, Verzlunartíðind- in, fyrir marz-mánuð er nýkomið út. Er blaðið alll hið Framhald á bls. 24. 22 FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.