Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1952, Side 23

Frjáls verslun - 01.02.1952, Side 23
Farsæls árs óska ég öllum þeim sem við verzlun vinna. Til þess að það geti orðið farsællt í þess orð beztu merkingu, verða allir að hafa nóg að starfa, bæði við verzlun og iðnað, og til sjávar og sveita. Svo sam- tvinnað er líf okkar allra, að ef einn blekkur í at- vinnukeðjunni brestur, er hætt við að öll keðjan gliðni í sundur, og hvert fyrirtækið af öðru reki í strand vegna áhrifa frá atvinnu- og fjárhagsörðugleikum al- mennings. Það er staðreynd, að iðnaðurinn berst í bökkum, en sú ógæfa verður ekki skrifuð á kostnað verzlunarinnar. Iðnaðurinn á sjálfur þarna nokkra sök á máli. Meðan liér voru innflutningshöft og allt, sem iðnaðurinn fram- leiddi, seldist, gættu iðnrekendur þess ekki að hlýða á raddir og óskir viðskiptavinanna. Nú eru breytiir tímar, og okkur ber að standa saman og hlúa að ís- lenzkum iðnaði. En til þess að svo geti orðið, verður að gera þær kröfur til iðnaðarins, að íslenzkar iðnaðar- vörur séu að gæðum til ekki á neinn hátl lakari en sams- konar meðalvörur frá útlöndum, svo að við getum ör- ugglega mælt með þeim og gert viðskiptavininn ánægð- an. Þegar íslenzkir iðnrekendur taka þessar kröfur til greina og annað það, sem til batnaðar má verða, mun brátt birla yfir íslenzku athafnalífi og iðnaðarfólkið mun fá nóg að starfa. Ein leið til að auka sölu á íslenzkum iðnaðarvörum er, að iðnfyrirtækin veiti verðlaun fyrir bezta verzlun- arsýningargluggann, sem sýndi framleiðslu þeirra. Gætu þau gert þetta sameiginlega eða hvert einstakt fyrirtæki úl af fyrir sig. Ef j>að yrðu sameiginleg verðlaun, myndu koma fram mismunandi vöruflokkar, t. d. sælgæti, niður- suðuvörur, tilbúinn fatnaður, svo að eitthvað sé nefnt. og yrðu verðlaun veitt fyrir hvern flokk fyrir sig. Iðnfyrirtækin létu verzlunum í té alls konar auglýs- ingaspjöld og sýningarvörur og sæi jafnframt um, að hver verzlun hefði á boðstólum þær vörur, sem hún auglýsti í gluggum sínum hverju sinni. Þá fyrst er það orðið sölusýning. Þessi auglýsingaaðferð hefur um áratugi verið mikið notuð erlendis og gefið mjög góða raun. Þykir það jafnan mikill heiður fvrir verzlunar- GliiffKÍ bessi fékk fyrstu verðlaun í samkeppni um útstillingu á barnafatnaði um gervallt England í liinni svonefndu barna- viku, en í þeirri viku keppast verzlanirnar um að draga til sín kaupendur á alls konar barnafatnaði. Iiangsarnir eru látn- ir draga barnafatnaði fram úr fataskápnum. Fyrstu verðlaun, silfurbikar, var glugga bessum úthlutað í A-flokki í samkeppni um bezta sýningargluggann um allt Eng- land. Er betta mjög skemmtileg og nýstárleg samstilling. FRJÁLS VERZLUN 23

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.