Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1952, Page 25

Frjáls verslun - 01.02.1952, Page 25
Ólajur Nielsen skrifstofu- stjóri andaðist 27. desember s.l. Hann var fæddur hér í Reykjavík J5. jftlí 1910, sonur hjónanna Christian Nielsen, er var danskur að ætterni og var verkstjóri hjá Sameinaða gufuskipafélag- inu hér í bæ í mörg ár. og Guölaugar Nielsen konu hans. Ólafur Nielsen hóf starf hjá vélsmiðjunni Keili h.f. nokkrum vikum eftir stofnun fyrirtækisins, fyrir rúm- um 12 árum, fyrst sem gjaldkeri og bókari, en síðar sem skrifstofustjóri. Ólafur var að eðlisfari fremur hlédrægur, en þó léttur í lund og kunni vel að gleðjast með glöðum. Honum var vel til vina og tryggur félagi. Hann var ljúfmenni hið mesta og drengur góður. Kvæntur var hann Brynhildi Nielsen, er lifir mann sinn, ásamt þremur ungum börnum þeirra. SigurSur Jafetsson verzl- unarmaSur andaðist. í sjúkrahúsi í Kaujtmanna- höfn 13. janúar s.l. Hann var fæddur 13. september 1905 hér í Reykjavík, son- ur hjónanna Jafets Sigurðs- sonar skipstjóra og Guð- rúnar Kristinsdóttur konu hans. Árið 1921 réðist Sigurð- ur heitinn til Haralds Árna- sonar kaupmanns, og hjá því fyrirtæki starfaði hann til dauðadags. Slarfaði liann um margra ára skeið við afgreiðslustörf í verzluninni, en síðar við heildsölu fyrirtækisins. Hann lauk burt- fararprófi frá Verzlunarskóla Islands vorið 1928. Sig- urður var nýtur og dugandi maður í starfi sínu og ávann sér liylli allra, sem við hann þurftu að skipta. íþróttamálin lét hann mikiö- til sín taka og vann mikið og óeigingjarnt starf í þágu Knattspyrnufélags Reykjavíkur. Var t.d. gjaldkeri hússjóðs félagsins í mörg ár. Sjálfur iðkaði hann mikið íþróttir á yngri árum. Áttu íþróttamálin ávallt góðan forsvarsmann þar sem Sigurður var. Sigurður var að eðlisfari hlédrægur og hæglátur, en þó fjörmaður undir niðri, og kunni vel að meta broslegu hliðar hins daglega Hfs. Ilann var prúðmenni mikið og vinsæll af öllum þeim sem liann þekktu. Er mikil eftirsjá þegar .svo góður drengur hverfur frá hinu jarðneska lífi á bezta aldursskeiði. Kvæntur var Sigurður Ástu Guðmundsdóttur og lif- ir hún mann sinn. Áttu þau einn son barna. GuSmundur Ásbjörnsson kaupmaSur andaðist 15. febrúar s.l. Banamein hans var heilablóðfall. Hann var Árnesingur að ætt, fædd- ur á Eyrarbakka 11. sept- ember 1880. Sveinspróf í trésmíði tók hann þar eystra um aldamótin, en fluttist til Reykjavíkur 1902. Árið 1914 stofnsetti hann verzlun í sambandi við trésmíðaverkistæði sitt, Br hann stofnaði árið áður. Verzlunina Vísi stofnaði hann svo árið 1915 ásamt Sigurbirni Þorkelssyni. Guðmundur var fyrst kosinn í bæjarstjórn Reykja- víkur 1918 og var bæjarfulltrúi ávallt síðan eða í 34 ár. Forseti bæjarstjórnar var hann kosinn 1926 og síð- an endurkosinn í þá viröingarstöðu allt til dauðadags, eða í samfleytt 26 ár. í bæjarráði átti hann sæti frá því að það var stofnað 1932. Hann gegndi margvísleg- um öðrum trúnaðarstörfum í þágu bæjarfélagsins og átti sæti í mörgum nefndum þess um fjölda ára. Er sízt ofmælt, að enginn einn maður hefur haft lengri og meiri afskipti af bæjarmálum Reykjavíkurbæjar en Guðmundur Ásbjörnsson. Hefur það verið erfitt starf, sem hvílt hefur á herðum hans, því að á þeim 34 ár- um, sem hann átti sæti í bæjarstjórn, var þróun, vöxtur og viögangur bæjarfélagsins mestur, en öll þessi störf leysti Guðmundur af hendi með ágætum. Auk síns eig- in atvinnurekstrar og starfa í þágu bæjarfélagsins, gaf hann sér tíma til margháttaðra annarra starfa. Hann hefur verið í stjórn ýmsra félaga og samtaka, m. a. Kaupmannafélagsins, Verzlunarráðsins og K.F.U.M. Hann átti sæti í stjórn Eimskipafélags íslands, Sjóvá- tryggingarfélags íslands, Vinnuveitendasambands Is- lands og í bankaráði Otvegsbankans. Ennfremur hefur Framhald á bls. 27. FRTÁLS VERZLUN 25

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.