Frjáls verslun - 01.02.1952, Qupperneq 25
Ólajur Nielsen skrifstofu-
stjóri andaðist 27. desember
s.l. Hann var fæddur hér
í Reykjavík J5. jftlí 1910,
sonur hjónanna Christian
Nielsen, er var danskur að
ætterni og var verkstjóri hjá
Sameinaða gufuskipafélag-
inu hér í bæ í mörg ár. og
Guölaugar Nielsen konu
hans.
Ólafur Nielsen hóf starf
hjá vélsmiðjunni Keili h.f.
nokkrum vikum eftir stofnun fyrirtækisins, fyrir rúm-
um 12 árum, fyrst sem gjaldkeri og bókari, en síðar
sem skrifstofustjóri.
Ólafur var að eðlisfari fremur hlédrægur, en þó
léttur í lund og kunni vel að gleðjast með glöðum.
Honum var vel til vina og tryggur félagi. Hann var
ljúfmenni hið mesta og drengur góður.
Kvæntur var hann Brynhildi Nielsen, er lifir mann
sinn, ásamt þremur ungum börnum þeirra.
SigurSur Jafetsson verzl-
unarmaSur andaðist. í
sjúkrahúsi í Kaujtmanna-
höfn 13. janúar s.l. Hann
var fæddur 13. september
1905 hér í Reykjavík, son-
ur hjónanna Jafets Sigurðs-
sonar skipstjóra og Guð-
rúnar Kristinsdóttur konu
hans.
Árið 1921 réðist Sigurð-
ur heitinn til Haralds Árna-
sonar kaupmanns, og hjá
því fyrirtæki starfaði hann til dauðadags. Slarfaði liann
um margra ára skeið við afgreiðslustörf í verzluninni,
en síðar við heildsölu fyrirtækisins. Hann lauk burt-
fararprófi frá Verzlunarskóla Islands vorið 1928. Sig-
urður var nýtur og dugandi maður í starfi sínu og
ávann sér liylli allra, sem við hann þurftu að skipta.
íþróttamálin lét hann mikiö- til sín taka og vann
mikið og óeigingjarnt starf í þágu Knattspyrnufélags
Reykjavíkur. Var t.d. gjaldkeri hússjóðs félagsins í
mörg ár. Sjálfur iðkaði hann mikið íþróttir á yngri
árum. Áttu íþróttamálin ávallt góðan forsvarsmann
þar sem Sigurður var.
Sigurður var að eðlisfari hlédrægur og hæglátur,
en þó fjörmaður undir niðri, og kunni vel að meta
broslegu hliðar hins daglega Hfs. Ilann var prúðmenni
mikið og vinsæll af öllum þeim sem liann þekktu. Er
mikil eftirsjá þegar .svo góður drengur hverfur frá hinu
jarðneska lífi á bezta aldursskeiði.
Kvæntur var Sigurður Ástu Guðmundsdóttur og lif-
ir hún mann sinn. Áttu þau einn son barna.
GuSmundur Ásbjörnsson
kaupmaSur andaðist 15.
febrúar s.l. Banamein hans
var heilablóðfall. Hann var
Árnesingur að ætt, fædd-
ur á Eyrarbakka 11. sept-
ember 1880. Sveinspróf í
trésmíði tók hann þar
eystra um aldamótin, en
fluttist til Reykjavíkur
1902. Árið 1914 stofnsetti
hann verzlun í sambandi
við trésmíðaverkistæði sitt,
Br hann stofnaði árið áður. Verzlunina Vísi stofnaði
hann svo árið 1915 ásamt Sigurbirni Þorkelssyni.
Guðmundur var fyrst kosinn í bæjarstjórn Reykja-
víkur 1918 og var bæjarfulltrúi ávallt síðan eða í 34
ár. Forseti bæjarstjórnar var hann kosinn 1926 og síð-
an endurkosinn í þá viröingarstöðu allt til dauðadags,
eða í samfleytt 26 ár. í bæjarráði átti hann sæti frá
því að það var stofnað 1932. Hann gegndi margvísleg-
um öðrum trúnaðarstörfum í þágu bæjarfélagsins og
átti sæti í mörgum nefndum þess um fjölda ára. Er
sízt ofmælt, að enginn einn maður hefur haft lengri
og meiri afskipti af bæjarmálum Reykjavíkurbæjar en
Guðmundur Ásbjörnsson. Hefur það verið erfitt starf,
sem hvílt hefur á herðum hans, því að á þeim 34 ár-
um, sem hann átti sæti í bæjarstjórn, var þróun, vöxtur
og viögangur bæjarfélagsins mestur, en öll þessi störf
leysti Guðmundur af hendi með ágætum. Auk síns eig-
in atvinnurekstrar og starfa í þágu bæjarfélagsins, gaf
hann sér tíma til margháttaðra annarra starfa. Hann
hefur verið í stjórn ýmsra félaga og samtaka, m. a.
Kaupmannafélagsins, Verzlunarráðsins og K.F.U.M.
Hann átti sæti í stjórn Eimskipafélags íslands, Sjóvá-
tryggingarfélags íslands, Vinnuveitendasambands Is-
lands og í bankaráði Otvegsbankans. Ennfremur hefur
Framhald á bls. 27.
FRTÁLS VERZLUN
25