Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1952, Síða 27

Frjáls verslun - 01.02.1952, Síða 27
Pétur Jónsson fyrrv. kaup- mafiur varð níræður þann 20. febrúar s.l. Pétur er fé- lögum V.R. að góðu kunn- ur. Hann var einn af stofn- endum félagsins og er nú sá eini, sem á lífi er af þeim 33 manna hóp. er stóð að stofnun þess. Pétur er fæddur og upp- alinn í Hafnarfirði. Syst- kini átti hann 10, én móð- ur sína missti hann ungur að árum. Faðir hans var formaður á teinæring, sem réri frá Hafnarfirði. Þessi istóra fjölskylda þurfti á allri fyrirvinnu að halda, sem hægt var að láta til falla. Pétur fór því snemma að vinna fyrir sér. Þjóð- hátíðarárið 1874 réðist hann til verzl. P. C. Knudtzon & Sön í Hafnarfirði, þá 12 ára gamall. Vann hann fyrst sem léttadrengur í verzluninni, en tók síðar við bókhaldarastöðu. Pétur starfaði svo til samflevtt við Knudtzonsverzlun um 23 ára skeið, eða þar til hún var lögð niður árið 1897. Til Kaupmannahafnar sigldi hann árið 1886 og gek'k þar á verzlunarskóla í hálft ár. Um aldamótin reisti Pétur húsið nr. 20 við Laugaveg. Rak hann þar eigin verzlun um fimm ára skeið og hafði á boðstólum matvörur og ismávörur ýmiskonar. Til Sameinaða gufuskipafélagsins réðst Pétur árið 1905 fyrir áeggjan Christian Zimsen. Þar vann hann svo óslitið á skrifstofunni í Reykjavík til ársins 1932. eða í 27 ár. Var þá sjón hans orðin það döpur, að hann átti örðugt um vinnu. Pétur Jónsson á langan starfsferil að baki sér i verzlunar/Stétt. Hann hefur ávallt verið trúr sínu starfi, dugandi og ráðagóður verzlunarmaður, prúðmenni og drengur góður í orðsins fyllstu merkingu. Pétur hefur verið heiðursfélagi í Verzlunarmannafélagi Reykja- víkur í mörg ár, og heiðursfélagi Styrktar- og sjúkra- sjóðs verzlunarmanna var hann gerður á níræðis af- mæli sínu. „Frjáls verzlun“ árnar þessum heiðursmanni allra heilla um ókomna ævidaga, FÉLAGSMÁL Verkaskipting stjórnar V.R. er nú þannig: Formað- ur Guðjón Einarsson, varaformaður Sveinbjörn Árna- son, ritari Njáll Símonarson, gjaldkeri Ólafur Stefáns- son. Meðstjórnendur eru Einar Elíasson, Gunnar Magn- ússon og Þórir Hall. Varastjórn skijia: Daníel Gísla- son. Hafliði Andrésson og Pétur Sæmundsen. Árshátíð V.R. var haldin laugardaginn 9. febrúar að Hótel Borg, og var hún fjölsótt að vanda. Að þessu sinni var nokkuð annað snið á hófinu en áður. Borð- haldið var ekki sameiginlegt, heldur var snætt við mörg smáborð og engar ræður voru fluttar. Meðan á borðhaldi stóð fóru fram skemmliatriði, sem voru bráðsmellin: skopsöngur, eftirhermur og Brynjólfur Jóhannes-on söng nýjar gamanvísur eftir einn félaga úr V.R. Tókst þessi árshátíð með ágætum og var fé- laginu til sóma. Þótti þetta nýja fyrirkomulag reynast vel. V.R. hefur gengizt fyrir bridgekeppni meðal fyrir- tækja bæjarins og gáfu sig fram tólf sveitir í keppn- ina. Hófst hún þriðjudaginn 12. febrúar, en framvegis verður spilað á miðvikudagskvöldum, alls ellefu um- ferðir. Ke]ipnisstjóri er Steingrímur Pálsson. Sveit sú. er sigur ber úr býtum, hlýtur silfurbikar að launum, og hver keppandi í þeirri sveit fær einnig lítinn bikar. Væri æskilegast að V.R. héldi slíka bridgekeppni ár- lega, því að það getur orðið til þess að glæða félags- lífið til muna. Skörð fyrir skildi Framhald af bls:j 25. hann verið stjórnarformaður í fiskveiðahlutafélaginu Hrönn, blaðaútgáfu Árvaks og Sparisjóðs Reykjavíkur. Guðmundur var mannkosta og hæfileikamaður mik- i 11, góðgjarn og velviljaður, vinmargur og vinsæll. Formaður Sjálístæðisflokksins kemst m. a. svo að orði í minningargrein um Guðmund: „Hann var tákn- ræn mynd þess, hversu miklu sá fær afrekað til góðs, sem sameinar skapfestu, viljaþrek, iðjusemi, dómgreind og skynsemi, enda þótt hann í æsku færi á mis við þá menntun, sem þjóðfélagið veitir nú börnum sínum.“ Aðalfundur Styrklar- og sjúkrasjóðs verzlunarmanna var haldinn í Tjarnarcafé 21. febrúar. Tekjur sjóðsins á árinum 1951 námu kr. 48.861,61, en gjöld kr. 22.204,- 40. Varð þannig kr. 26.457,21 eignaraukning á árinu. og nema eignir sjóðsins nú kr. 417.733,33. Stjórn sjóðs- ins var endurkosin, en hana skipa: Helgi Bergs for- maður, Guðmundur Þórðarson ritari og Ingimar Brynj- ólfsson gjaldkeri. Meðstjórnendur eru : Erlendur Ó. Pétursson og Sigurjón Jónsson. í varastjórn voru kosn- ir: Henrik Thorarensen. Nieljohníus Ólafsson og Sig- urður Einarsson. Sjóðurinn verður 85 ára á hausti komandi. FRJÁLSVERZLUN 27

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.