Frjáls verslun - 01.04.1954, Blaðsíða 8
Só stulti í flæðarmálmu.
son lieitir sú yngri, með yndislega fallegt og sak-
leysislegt andlit. Hún er frá Uppsölum og kveðst
aldrei hafa leikið áður. Var hún að horfa á kvik-
myndatöku í Uppsölum, þegar menn komu auga
á hana og völdu hana í hlutverk Sölku Völku á
unga aldri. Birgitta er mjög blátt áfram í fram-
komu og gefur af sér góðan þokka. Þær Sölk-
urnar sitja saman við borð, og verður okkur nú
starsýnt á þá, sem leikur að'alhlutverkið, Gunnel
Broström. Hún er nokkuð hávaxin, stuttklippt
og með dreymandi augu. Brosið er hlýlegt og
viðmótið aðlaðandi. Ekkert er sjálfsagðara en
að fá að taka mynd af þeim Sölkunum, þegar
farið er fram á það. Þær eru báðar klæddar
eins og þær eiga að' vera á morgun, þegar síðasta
atriðið verður kvikmyndað í Grindavík, en það
—
MUNIÐ ÞIÐ EFTIR
„FJ ALL A-E Y VINDI",
SEM KVIKMYNDAÐUR VAR 1917?
Fyrsta sænska kvikmyndin, sem byggð var á
íslenzku efni, var tekin árið 1917. Var það
„Fjalla-Eyvindur" Jóhanns Sigurjónssonar, og
nefndu Svíar kvikmyndina „Berg-Eyvind och
hans hustru". Aðalhlutverkin léku þau Victor
Sjöström og Edith Erastoff, en Svenska Bio-
grafteatern gerði myndina. Oll útiatriði kvik-
myndarinnar voru tekin í sænsku Lapplands-
fjöllunum.
----------------------^
er írá kirkjugarðinum. Það er auðheyrt á þeim,
að þær hlakka til að flytja til Reykjavíkur, enda
þótt margar skemmtilegar endurminningar séu
l'rá dvölinni í Grindavík. Gunnel Broström segir,
að Salka Valka sé fyrsta sænska kvikmyndin,
sem hún leikur í síðan hún kom frá Hollywood,
en þar dvaldi hún um nokkurt skeið. Hún gerir
sér miklar vonir um þessa kvikmynd, sem mikil
vinna og háar fjárfúJgur hafa verið' lagðar í. All-
ir Svíarnir virðast á einu máli um, að Salka
Valka eigi ef'tir að fara sigurför, ekki einungs um
Norðurlönd, heldur víðar.
Við tökum undir bjartsýni Svíanna, þökkum
þeim fyrir gestrisnina og kveðjum þá síðan. Enn
rignir í Grindavík, þegar við ökum burtu, og
grá þokan teygir sig yfir umhverfið. Kannske að
það hafi rofað eitthvað' til, þegar Salka Valka
verður frumsýnd samtímis í Stokkhólmi og
Ileykjavík í nóvember eða desember á vetri kom-
anda?
„Philxps fréttir" — nýtt tímarit
Til tíðinda má það teljast, þegar íslenzkir
kaupsýslumenn ráðast í útgáfu tímarits, sem
eingöngu er helgað ákveðnu erlendu umboði.
Nýlega sendi Snorri P. B. Arnar, sem er um-
boðsmaður hinna víðkunnu hollenzku Philips-
verksmiðja, frá sér nýtt blað, og nefnist það
„Philips fréttir". Eins og nafnið ber með sér,
flytur blaðið ýmsar fréttir um starfsemi Philips
svo og helztu nýjungar, sem markverð'ar mega
teljast.
I formálsorðum fyrir fyrsta tölublaði „Philips
frétta“ segir m. a.:
„Philips fréttir eru aðallega ætlaðar kaup-
mönnum þeim, sem selja Philips vörur. Birtar
verða ujjplýsingar um vörurnar svo og tilkynn-
ingar um nýjungar, þegar þær koma, eða eru
vætanlegar á markaðinn.“
Ráðgert er, að „Philips fréttir“ komi út 3 til
4 sinnum á ári. Telja verður það mikla fram-
takssemi lijá Snorra P. B. Arnar að ráð'ast í
slíka útgáfu sem þessa, enda er þetta einsdæmi
hér á landi. Hefur blaðið farið vel af stað, því
jxrentun og frágangur allur er með ágætum.
Borgarprent hefur annazt prentun, en útgefandi
og ábyrgarmaður er Snorri P. B. Arnar.
36
FKJÁLS VERZLUN