Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1954, Page 15

Frjáls verslun - 01.06.1954, Page 15
1 Minningarljóð um SKÚLA MAGNÚSSON, landfógeta, 18. ágúst 1954 Lag: „Ó, fögur er vor fósturjörð —" Hér hyllum vér þá hetju, er bar svo hátt af landsins sonum, að aldarstríð og aldarfar tók ægissvip af honum. Þar kenndist fas hins frjálsa manns, án flærðar, hiks og ótta. Og jafnvel undan augum hans hrökk ofbeldið á flótta. Og þessi borg er borgin hans. Hér byggðist hún við sundin af vilja og dáð hins vaska manns og verður honum bundin. Því yfir kröm og örbirgð sá hans andi héðan rísa við feginsaugum framtíð þá, sem fólk hans átti vísa. Svo hófst hann þeirri harðstjórn gegn, sem hugðist öllu ráða. Og djörfu kalli kong og þegn hann kvaddi jafnt til dáða. En þó að ýmsum yrði naum og óblíð fósturmoldin, ég vissi aldrei dáð og draum jafn dýru verði goldinn. Því þúsund stormar standa á þeim stofni, er hæstur gnæfir. Hann kynnist lítt við líknsemd þá, er lægsta kjarri hæfir. — Og eftir harðan hildarleik stóð hetjan vinasnauða sem hnarreist eik, en ellibleik, í einsemd harms og dauða. En þótt til brautar byggist hann með brotinn skjöld og vigur, í trúnni á land sitt líf hans vann að lokum fullan sigur. Og þar, til liðs við þjóð og menn gegn þögn og kotungsótta, frá sinni gröf hann gengur enn með gust af frjálsum þótta. TÓMAS GUÐMUNDSSON. L. FKJÁLS VERZLUN 67

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.