Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1954, Blaðsíða 18

Frjáls verslun - 01.06.1954, Blaðsíða 18
V erzlunarmannaf élag Hafnarfjarðar 25 ára Haraldur Guðmundxson, jnrm. Verzlunarmannajélags IJafnarfjarðar Verzlunarmannafélag Hafnarfjarðar minntist tuttugu og fimm ára afmæiis síns í nóvember 1953. Voru þar meðal annars fluttir þættir úr sögu félags- ins, sem Ólafur Þ. Kristjánsson tók saman, og fer hér á eftir úrdráttur úr þeim. Stofnfundur Verzlunarmannafélags Hafnar- fjarðar var haldinn 28. júní 1028. Fundarstjóri var Jón Mathiesen, kaupmaður, en fundarritari Valdimar Long, verzlunarmað'ur, síðar kaup- maður. Svo er að sjá, að verzlunarmannasamtökin í Reykjavík hafi átt nokkurn þátt í stofnun fé- lagsins. Þá hafði nýlega verið stofnað Samband verzlunarmannafélaga á Islandi, og lagði það að vonum áherzlu á, að stofnuð væru verzlunar- mannafélög á sem flestum stöðum á landinu. Var því eðlilegt, að verzlunarmenn í Reykjavík, þar sem samtökin voru öflugust, ýttu undir ná- granna sína, Hafnfirðingana, um stofnun slíks félags og væru með í ráðum um þær fram- kvæmdir. Voru fimm menn þaðan staddir á stofnfundinum, og hafði Egill Guttormsson orð fyrir þeim. Samþykkt voru lög fvrir félagið og ákveðið að ganga í Samband verzlunarmannafélaga á Ts- landi. Stjórn var kosin, og skipuðu hana ]>eir Jón Mathiesen, formaður, Eyjólfur Kristjánsson, Jón Gestur Vigfússon, Sigurður Magnússon og Valdimar Long. Sat hún til aðalfundar 9. marz 1029. Þá varð Eyjólfur Kristjánsson formaður, en með honum í stjórninni voru Friðbjörg Krist- jánsdóttir (ritarij, Jóhannes Gunnarsson (gjald- keri), Rergþóra Nýborg og Sesselja Kjærnested. Störf félagsins fyrstu árin virðast einkum hafa verið fólgin í að auka kynningu félagsmanna inn- byrðis og þekkingu þeirra á ýmsum málum, er verzlunarstéttina varðaði ekki síður en aðra þegna þjóðfélagsins. Þannig var t. d. samþykkt að fá Jón Þorláksson suður í Hafnarfjörð til þess að flytja þar erindi um gengismál, er hann hafði áður flutt á þingi Verzlunarmannasambandsins. Einnig tók félagið þátt í störfum sambandsins, en það hafði þá til meðferðar ýmis nauðsynja- mál verzlunarstéttarinnar, svo sem verzlunar- nám og atvinnuréttindi verzlunarmanna. Um tilgang félagsins segir svo í elztu lögum þess, sem til eru (frá 11. okt. 19311, að hann sé „að vinna að nánari viðkynningu og skipu- lagsbundnum samtökum meðal verzlunarþjóna og kappkosta að efla, styrkja og mennta verzl- unarstétt landsins af fremsta megni“. Þessum tilgangi vildi félagið reyna að ná a) með því að vera vakandi fyrir öllu því, sem gæti orðið til viðreisnar og framfara verzl- unarstéttinni, b) með því að vinna á heilbrigðum grundvelli að því, að' betra skipulag komist á í launakjör- um og störfum verzlunarmanna, c) með því að halda fundi svo oft á félags- árinu sem atvik leyfa og þörf gerist um mál- efni, sem séu fræðandi og heillavænleg fyrir verzlunarstétt landsins“. Segja má, að félagið hafi starfað samkvæmt þessum tilgangi sínum og starfi enn, þótt við- fangsefnin hafi vitanlega að ýmsu breytzt á þeim tiltölulega langa tíma, síðan þessi lög voru samþykkt. Félagið hefur unnið að nánari viðkynningu meðal verzlunarfólksins með fundahöldum og öðrum samkomum, jafnvel sameiginlegum ferða- lögum. Félagið hefur reynt að mennta verzlunarstétt- ina í Hafnarfirði meðal annars með námskeið- 70 FRJÁLS VEUZLUN

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.