Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1960, Blaðsíða 3

Frjáls verslun - 01.11.1960, Blaðsíða 3
Dráliarbáturinn MAGNI í smíðum og átti mörgum ágætum fagmönnum á að skipa. Skip höfðu verið endurnýjuð að ýmsu leyti, um- byggð og lengd. Svo til allir hlutar bols skip- anna höfðu verið endurnýjaðir. Röralagnir höfðu margoft verið framkvæmdar í skipum, sömu- leiðis niðursetning véla, raflagnir, innréttingar á mannaíbúðum, málning og annað slikt, sem einnig heyrir til nýsmíði skipa. Eitt var þó þrep- ið, sem enn var óstigið þá: Hér á landi hafði aldrei verið teiknað stálskip til nýsmíði, aldrei hafði verið „slegið af“ skipi í fullri stærð á bandalofti, aldrei hafði verið lagður kjölur að nýju skipi, reist bönd, bitar og klætt bvrðingi. Að þessum verkefnum leystum, var flest það, sem á eftir kom, kunnugt starfsmömnun Stál- smiðjunnar, vélsmiðjunum Hamri og Héðni, sem að henni standa, og þeim fyrirtækjum öðrum í trésmíði, raflögnum og öðru, sem venja var að leita til í þeim efnum. — Aður liafði aðeins verið endurnýjaður hluti gamalla skipa og þá farið eftir þeim hluta, sem úr var tekinn, en með ný- smíðinni hófst þáttur eigin sköpunar frá rótum. Til að geta stigið þetta skref þurfti að fram- kvæma ýmsan undirbúning, kaupa verkfæri og tæki, sem reyndar flest komu að góðu gagni einnig við viðgerðir skipa, svo sem vökvapressa, bandabeygivél og bandabeygiplan. Nýsmíða- braut með lyftikranabúnaði og bandaloft til að teikna lag banda og platna í fullri stærð, var hins vegar svo til eingöngu miðað við nýmsíði skipa. — Tæki og búnaður þessi var í Stálsmiðj- unni miðaður við, að þar væri hægt að smíða togara allt að 800 brúttórúmlestir, og reyndar trúlega allt að 1000 brl. Fyrsta verkefnið, sem Stálsmiðjunni bauðst, var smíði á dráttarbát fyr- ir Reykjavíkurhöfn. Verður aldrei nógsamlega þakkað það traust, sem bæjaryfirvöld Reykja- víkur, og þá fyrst og fremst hafnarstjóri, sýndu þannig óreyndum frumkvöðlum á vettvangi stálskipasmíða á Islandi. Mörgum þótti Magni ljótur á meðan hann var í smíðum á landi og skil ég vel þá skoðun. Dráttarbátar eru mjög sérstæð skip. Um það var ekki að fást. Skipið varð fyrst og fremst að henta til sinna þarfa, en að því uppfylltu var reynt að fegra útlit svo sem frekast var unnt. Einn listamaður okkar var þó mjög hrifinn af böndunum, þegar þau höfðu verið reist. Sagði þau mjög formfögur frá listamannssjónarmiði. Hins vegar gat ég ekki orðið við óskum hans um að setja engan byrðing á bolinn. Hann sagði það vera synd að hylja böndin. Betra FRJALS VERZLUN 3

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.