Frjáls verslun - 01.11.1960, Page 21
Uppdrótturinn sýnir tillögu skipulagsneindar ríkisins um framtiðarskipulag miðbæjarins ó Akureyri. „Blóu" húsin eru verzlunar-
og skrifsioluhús. Glerórgata er breikkuð og framlengd meðiram ströndinni, þannig að fullkomin umferðaræð liggur í gegnum
bæinn og í óttina cð ílugvellinum. Gert er róð fyrir mikilli uppfyllingu framan við Strandgötu. þar sem komi varzlunarhús, vöru-
skemmur og bifreiðastæði. Viðskiptahverfi af þessari stærð ætti að nægja 25—30 þús. manna borg, en lítil framsýni væri það,
að miða skipulagið við minna.
hafa aukizt með ári hverju, og munu um tíu
5—7 tonna bílar annast þá flutninga að stað-
aldri, þegar bílfært er. Ferðaskrifstofa ríkisins
hefir afgreiðslu fyrir sérleyfishafa og skipulegg-
ur hópferðir frá bænum. Leigubílastöðvar eru
tvær, og strætisvagnaferðir um bæinn. Flóabát-
urinn „Drangur“, sem gerður er út, frá Akur-
eyri, hefir fastar áætlunarferðir til næstu hafna,
allt árið um kring. Báturinn er nýr og hinn bezti
farkostur.
Á árinu 1054 var tekinn í notkun nyr flug-
völlur, seni gerður hafði verið rétt innan við
bæinn. Hann er nú 15 til 16 hundruð metra
langur, og geta allar íslenzkar flugvélar lent á
honum. Flutningar á fólki og góssi fara stöðugt
vaxandi, og mörg fyrirtæki nota nú þegar tölu-
vert flugvélar til þess að koma framleiðsluvör-
um sínum á markaðinn í Reykjaavík. Á síðast-
liðnu ári voru urii 1300 lendingar á flugvellinuin
og um hann fóru allt að 20 þúsund farþegar.
Flugstöðvarbygging er í smíðum, sem vonandi
verður tekin í notkun á næsta ári.
Útgerð
Árið 1947 gerðist merkisatburður í atvinnu-
sögu Akureyrar, er fyrsti togarinn kom til Ut-
gerðarfélags Akureyringa hf. Félagið á nú fimm
togara. Þeir eru að mestu mannaðir heimamönn-
um.
Utgerðarfélagið hefir smám saman komið sér
FRJÁLS VERZLUN
21