Frjáls verslun - 01.11.1960, Blaðsíða 23
„Lindu“, sem nú er að byggja stórhýsi yfir
starfsemi sína, fatagerðina „Amaró“, sem einnig
er með stórhýsi í smíðum, með „Amaróbúðinni“,
Kexverksmiðjuna „Lorelei“ og Dúkaverksmiðj-
una.
Slippstöðin hf. annast viðgerðir á bátum og
hefir byrjað á nýsmíði. Slippurinn er eign bæj-
arins, en er leigður hlutafélagi. Bæjarstjórn hefir
haft í undirbúningi að lcoma þar upp dráttar-
braut fyrir togara, og þegar lagt til hliðar tölu-
vert fé í þeim tilgangi, einnig fengið fjárveit-
ingu á fjárlögum. Kaupfélag Eyfirðinga hefir
starfrækt skipasmíðastöð í mörg ár. Hefir stöðin
fengið orð á sig fyrir góðan frágang. Vélsmiðjur
eru góðar í bænum og eru „Atli“ og „Oddi“
þeirra stærstar. Þá eru í bænum fjögur verk-
stæði, sem annast viðgerðir á bifreiðum og land-
búnaðartækjum. Kaupfélagið rekur mjólkur-
vinnslustöð, en innvegið mjólkurmagn var sl. ár
13,1 millj. lítrar. Hefir það nú í undirbúningi
stórbyggingu fyrir stöðina.
Ríkið hefir að undanförnu rekið tunnuverk-
smiðju í bænum, og hafa þar starfað um 30
verkamenn að tunnusmíði 3—5 mánuði vetr-
arins. Vélakostur verksmiðjunnar er sæmilegur,
en tilfinnanlega hefir vantað geymsluhús fyrir
framleiðsluna.
I bænum eru mörg trésmíðaverkstæði og mik-
il húsgagnaframleiðsla. Astæða væri til þess að
minnast á fleiri fyrirtæki, en hér verður staðar
numið.
Iðnaðannannastéttin er fjölmenn á Akureyri,
og má segja að hún hafi eins og skólafólkið sett
svip sinn á bæjarlífið.
Menningar- og félagsmál
Ég vil nú með örfáum orðum víkja að menn-
ingarmálunum.
Ný kirkja var vígð árið 1940, hið veglegasta
guðshús, á fögrum stað. A næstunni mun kirkjan
eignast góðan grip, nýtt pípuorgel. Þjónandi
prestar eru tveir.
Gagnfræðaskólinn á Akureyri, arftaki Möðru-
vallaskóla, bjó fyrst nemendur undir stúdents-
próf árið 1927. Full menntaskólaréttindi fékk
skólinn með lögum þremur árum síðar. Skólinn
starfar nú í þremur deildum: miðskóladeild,
mála- og stærfræðideild. I vetur verða þar yfir
400 nemendur. í Gagnfræðaskóla Akureyrar
verða í vetur yfir 500 nemendur. Báðir eru
þessir skólar í öruni vexti og njóta álits sem góð-
ar menntastofnanir. Nemendur Iðnskólans verða
í vetur um 90. Skólinn þarf að komast í eigið
húsnæði, og er þegar hafinn undirbúningur að
iðnskólabyggingu. Tónlistarskóli hefir starfað í
nokkur ár, og nemendur verið um 50 árlega. í
Húsmæðraskólanum hafa verið haldin námskeið
í matargerð og vefnaði.
í bænum er nýr íþróttavöllur, og hefir að und-
anförnu verið unnið að því að koma þar upp
áhorfendapöllum og búningsklefum. Við gömlu
sundlaugina hefir risið glæsileg innisundlaug. Þá
er og íþróttahús, sem reist var fyrir alllöngu.
Skilyrði til íþróttaiðkana eru því mjög góð í
bænum.
Fjórðungssjúkrahúsið tók til starfa fyrir
nokkrum árum, og eru þar þrjár deildir: Hand-
lækninga-, lyflækninga- og fæðingadeild. Sjúkra-
húsið getur tekið við yfir 100 sjúklingum.
Byrjað er á byggingu elliheimilis, sem ætlað
er fyrst um sinn fyrir 60—70 vistmenn.
Bærinn á gott bókasafn (Amtsbókasafnið), og
komið hefir verið upp myndarlegum vísi að nátt-
úrugripasafni. Bæði eru þessi söfn í sæmilegum
húsakynnum, en gert er ráð fyrir því að bvggja
yfir bókasafnið. Þá má ekki gleyma Matthíasar-
safninu á Sigurhæðum.
Starfandi eru: Leikfélag, tónlistarfélag, söng-
félög. barnaverndarfélag, slysavarnafélag, ferða-
málafélag, íþróttafélög, kvenfélög, svo einhver
séu nefnd, að ógleymdum pólitísku félögunum,
sem helzt sýna einhver tilþrif rétt fyrir kosn-
ingar.
Arið 1910 bundust konur í bænum, undir leið-
sögn frú Onnu Schiöth, samtökum um að koma
upp skrúðgarði. Frú Margréthe Schiöth tók
upp merki móður sinnar, og „Lystigarðurinn“
hefir stækkað og blómstrað. Þar er nú stærsti
„bótaniski“ garðurinn, sem til er á landinu. Með
því að koma honurn upp hefir Jón Rögnvalds-
son, garðyrkjumaður, unnið þrekvirki, sem lengi
mun verða minnzt.
A undanförnum árum hefir verið unnið að
skipulagi bæjarins. Fjöldamörg verkefni eru
framundan eins og' t. d. í gatnagerð og öðru,
sem stuðlar að bættri þjónustu við bæjarbúa.
★
Um síðustu áramót voru íbúar Akureyrar
um 8590. Með árunum mun þeim fjölga, og ég
vona, að þeirra bíði gæfa og' gengi.
frjals verzlun
23