Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1960, Qupperneq 36

Frjáls verslun - 01.11.1960, Qupperneq 36
drengurinn frjálsar hendur. Þá skreiddist hann fram á brúnina ofurvarlega og hafði ekki augun af svefn- herbergisglugganum í húsinu hinumegin við götuna. Hann hélt niðri í sér andanum og fann hvernig hjartað fór að ólmast í brjóstinu. Einkum á morgnana var hann stundum svo heppinn að sjá hana sitja við snyrtiborðið og kemba sítt ljóst hárið. Hún sneri hálfvegis í hann baki en þó sá hann rnóta fyrir barminum og horfði á hann hefjast og hníga eftir tilburðum hennar framan við spegilinn. Oft gat hann fylgzt með henni cr hún reikaði fram og aftur um íbúðina, tíðast á nátt- kjólnum eða í morgunsloppi og tók sér ýmislegt smávegis fyrir hendur. Og stundum tók hún sér sæti á svölunum þegar sólskin var, lagðist endilöng í seglstól og smurði sig alla hvítri mykju til að verða brún. Hann sá ekki vel inn á svalirnar nema með því móti að standa uppréttur. Eitt sinn hafði hann ætlað að rísa upp, hann kreppti linén og studdi hnúunum á þakið, rétti sig upp hægt og varlega. En hann var ekki risinn til hálfs þegar setti að honum ógurlegan svima, hann kreisti aftur augun, fann svitann spretta út á öllum kroppnum, hann skalf allur og var næstum búinn að pissa í bux- urnar. Síðan reyndi hann ekki að rísa á fætur yzt út á brúninni. Hann lét sér nægja að horfa á handleggi hennar þegar hún teygði þá uppfyrir sóltjaldið og fótleggina niðurundan. Þegar hún reis upp úr stóln- um sá hann líkama hennar niður að mitti, brún- leita húðina gljáandi af smyrsli. Aður en meistarinn skreið upp um þakgluggann eftir kaffitímann, hafði drengurinn hellt mjólkinni sinni í þakrennuna svo lítið bar á og dúndrað brauð- pakkanum niður í nánd við öskutunnurnar. Nestið fór jafnvel sömu leið þó hann sæi ekki tangur né tetur af lienni allan kaffitímann. Hann var orðinn svo lystarlaus upp á síðkastið. Meistarinn hélt áfram að vera gáttaður á drengn- um, hann botnaði ekkert í því hvað drengurinn gat verið að sækja út á blábrún, lofthræddur og utan við sig. Þetta hlyti að enda með ósköpum. — Og hann pabbi þinn bað mig fyrir þig, sagði hann og rak naglana á kaf hvern af öðrum. Það var lítil umferð um götuna en sífellt hópur af börnum að leik. Drengurinn sýndi leik þeirra engan áhuga, þó var ekki ýkja langt síðan hann hljóp um stéttir og snaraðist yfir girðingar eins og þessi börn. Það var dularfullur sársauki sem set.tist að hon- um, þegar rauði bíllinn smaug upp að húsdyrum hinumegin. Það var lítill tveggja manna bíll með blæju. I góðu veðri ók ungi maðurinn í bílnum opnum og hafði ckki fyrir því að opna dyrnar, þegar liann nam staðar við húsið. Hann stökk í einu vetfangi yfir bílhurðina og veifaði til hennar, ef hún var í glugganum. Stundum hópuðust börnin í kringum bílinn og j)á dró hann brjóstsykur upp úr vasanum, dreifði úr pokanum á grasflötina og lét börnin tína upp molana. Stundum var flogizt á út af molunum og ungi maðurinn hló og leit svo upp í gluggann til að sjá hvort lienni væri ekki líka skemmt. Græn derhúfan, dökkt yfirskeggið, þröngar buxurnar og grá peysan sem gúlpaðist ofaná mjaðmir; rauði bíllinn; allt olli þetta drengn- um nafnlausum sársauka, þcnnan dularfulla sárs- auka var ekki hægt að láta í ljós á neinn hátt og það var verst af öllu. Það var ekki hægt að öskra einsog þegar maður sker sig í putta eða fær kúlu á ennið; það var ekkert hægt að gcra nema þegja og hafast ekki að. Þessi sársauki var blindur og mállaus, engum var hægt að segja frá honum, hann var nafnlaus og átti sér enga mynd. Börnin tuskuðust á um brjóstsykursmolana, ungi maðurinn var hlaupinn inn í húsið og hún var horfin úr glugganum. Hún sást aldrei þegar hann var kom- inn inn. Og stundum voru tjöldin dregin fyrir glugg- ann og langar stundir liðu. Og drengurinn skotraði augunum að þögiurn gluggum og fann hjartað í sér herpast saman, en meistarinn leit uppúr vinnu sinni brúnaþungur: — Ekkert botna ég í því hvernig þú ert orðinn! Ég verð að fara að tala við hann pabba þinn. Stundum óku þau bæði saman á brott í rauða bílnum og það fannst drengnum betra en vita af þcim inni. Hann óskaði þess af heilum hug að hann gæti komið þessum rauða bíl fyrir kattarnef og unga manninum með yfirskeggið. Sumir dagar liðu svo að rauði bíllinn sást ekki, þá var hún oftast á svölunum ef sólin skein og hann horfði á hana teygja handleggina upp fyrir sól- tjaldið. Þegar hún hafði baðað sig nógsamlcga í sólarljósinu, gekk hún inní svefnherbergið til að klæða sig og þá kom stundum í ljós að hún hafði ekki einu sinni verið í baðfötunum. A slíkum dögum átti hann hana einn og ungi maðurinn í rauða bílnurn gleymdist. Það voru bjartir dagar. Og hann dreymdi þann dag er hann gengi yfir götuna heim að húsinu og hún hlypi úr glugganum 36 FRJALS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.