Frjáls verslun - 01.03.1968, Síða 7
FRJÁLS VERZLLH'f
V
SAMTÍÐARMENN
TORFI HJARTARSON
— tollstjórinn, sem miðlar málum.
Torfa Hjartarson þekkja allir.
í nærfellt aldarfjórðung hefur
hann miðlað málum í þeim vinnu-
deilum, er risið hafa hérlendis
milli launþega og atvinnurekenda.
Hefur þáttur hans í lausn þeirra
mála jafnan verið drjúgur, enda
er maðurinn vinsæll með báðum
aðilum. Hann hefur það orð á sér
að vera lipur samningamaður, en
harður í horn að taka, þegar þess
gerist þörf. Hann er sagður rétt-
sýnn og lætur jafnt yfir báða
deiluaðila ganga. Torfi var mjög
í fréttunum fyrir skömmu meðan
allsherjarverkfallið stóð yfir, og
var hlutur hans í lausn þess þung-
ur á metunum. Þess vegna kynn-
um við Torfa Hjartarson sem sam-
tíðarmann í þessu blaði, enda þótt
sáttasemjarastarfið sé alls ekki
hans aðalstarf. Hann veitir toll-
stjóraembættinu forstöðu, og hef-
ur gert svo frá 1943. Og nú er
hann að láta byggja veglega bygg-
ingu við Tryggvagötu yfir starf-
semi tollstjóraembættisins, og
kalla sumir húsið í gamni Torfa-
staði. Væri ekki óviðeigandi, að
það nafn festist á byggingunni.
Torfi Hjartarson fæddist 21.
maí árið 1902 að Hvanneyri í
Borgarfirði. Voru foreldrar hans
Hjörtur Snorrason og Ragnheiður
Torfadóttir frá Ólafsdal. Var fað-
ir hans þá skólastjóri Búnaðar-
skólans á Hvanneyri. Þegar Torfi
var fimm ára að aldri, lét Hjörtur
af skólastjórastarfinu og gerðist
bóndi að Skeljabrekku í Borgar-
firði, en nokkrum árum síðar að
Arnarholti í Borgarfirði, fallegri
og skemmtilegri jörð.
Ólst Torfi þar upp, þar til skóla-
nám hans hófst. Var hann fyrst
tvo vetur í Flensborgarskóla, en
innritaðist að því búnu í 4. bekk
Menntaskólans í Reykjavík. Torfi
lauk stúdentsprófi þaðan vorið
1924, en innritaðist næsta haust í
lagadeild Háskóla íslands. Faðir
Torfa, Hjörtur, lézt árið 1925, og
tók Torfi þá að miklu leyti við
forsjá búsins að Arnarholti, með
móður sinni. Tvo næstu vetur
vann hann samfara námi í skrif-
stofu Alþingis og var jafnframt
aðstoðarmaður fjárveitinganefnd-
ar. Búskaparumstang og önnur
störf töfðu Torfa að sjálfsögðu
nokkuð frá námi, en embættis-
prófi í lögfræði lauk hann í febrú-