Frjáls verslun - 01.03.1968, Side 13
FRJÁL5 VERZLUNf
13
Tollstöðvarbyggingin nýja í Reykjavík er mikið hús.
TOLLSTÖÐIN FOKHELD NÆSTA HAUST
Ekki er hægt að skilja svo við
Torfa Hjartarson, að ekki sé
minnst á hans aðalstarf, þ. e. toll-
stjórastarfið. Við áttum þessvegna
stutt samtal við Torfa um starf-
semi Tollstjóraembættisins. Spurð-
um við hann um starfsskilyrði
þess.
— Hvernig eru húsnæðisskil-
yrði tollstjóraembættisins?
— Þau hafa ávallt verið slæm.
Tollstjóraskrifstofan býr nú við
þröngan húsakost í Arnarhvoli,
en höfuðstöðvar tollgæzlunnar
eru í Hafnarhúsinu og er hús-
næði hennar einnig af skornum
skammti. Þessar tvær stofnanir
þurfa að hafa nána samvinnu og
er mjög óhagkvæmt, að þær skuli
ekki vera í sameiginlegu húsnæði.
Þetta stendur nú til bóta. Árið
1956 fékk ég því til leiðar komið,
að byrjað var að safna fé í sér-
stakan sjóð til bygginga tollstöðva
með þeim hætti, að 1% af vöru-
magns- og verðtolli skyldi renna
í sjóðinn. Síðan 1963 rennur %%
af aðflutningsgjöldum í sjóðinn.
Síðastliðið ár var hafist handa
um byggingu tollstöðvar í Reykja-
vík. Er nú verið að ljúka við að
steypa bygginguna upp og vonir
standa til, að unnt verði að gera
hana fokhelda fyrir næsta haust
og neðstu hæðina, sem er stór
vörugeymsla, nothæfa. Hins veg-
ar skortir enn fé til að ljúka bygg-
ingunni að fullu. Er þeim áfanga
verður náð, verða tollstjóraskrif-
stofan og aðalstöðvar tollgæzlunn-
ar fluttar þangað í sameiginlegt
og rúmgott húsnæði og þeim sköp-
uð miklu betri starfsskilyrði en
þær hafa nú.
— Hvernig eru starfsskilyrði
tollgæzlunnar að öðru leyti?
— Starfsskilyrðum tollgæzl-
unnar í Reykjavík við eftirlit með
uppskipun, vörzlu og skoðun inn-
fluttra vara er hörmulega ábóta-
vant. f fyrsta lagi veldur það
miklum örðugleikum, að höfn-
inni hefur ekki enn verið skipt
í innflutningshöfn og fiskihöfn;
er á því brýn þörf. í öðru lagi er
næstum alger skortur á hentug-
um vöruskemmum við hafnar-
bakkana. Mikið af þeim vörum,
sem fluttar eru inn í Reykjavík,
er hátolluð stykkjavara. Til þess
að sæmilegt eftirlit verði haftmeð
innflutningi slíkra vara, þurfa
skipin, meðan á uppskipun stend-