Frjáls verslun - 01.03.1968, Page 29
FRJÁLS VERZLUN
29
ÚR ÞDMGSÖLUM
EKKI NÁÐIST SAMSTAÐA UM ÝMS-
AR BREYTINGAR Á ÞINGSKÖPUM
Rœtt um kjördœmaskipulagið, sem nauðsynlegt er að
íara að gera breytingu á.
Dregið úr heildarútgjöldum ríkisins um 138 millj. kr.
Senn fer að líða að því, að 88.
löggjafarþing íslendinga, það er
nú situr, Ijúki störfum sínum, og
eru þingstörfin þegar tekin að
mótast af því. Færri ný lagafrum-
vcrp og tillögur koma fram en
áður, en þess fleiri nefndarálit
frá fastanefndum þingsins, svo og
breytingartillögur við framkomin
frumvörp. Um mánaðamót febrú-
ar — marz höfðu alls 41 þingmál
hlotið fullnaðarafgreiðslu, þar af
19 stjórnarfrumvörp og 17 fyrir-
spurnir. Aðeins eitt þingmanna-
frumvarp hafði hlotið samþykki
og eitt verið fellt.
Það er því ljóst, að miklum
fjölda þingmála er nú sem alltaf
áður búin þau örlög að „sofna í
nefnd“. Svo mun alltaf verða,
a. m. k. að óbreyttu skipulagi
þingstarfa. Nú eru reyndar uppi
raddir um, að skipulaginu verði
að breyta, og þá helzt hallazt að
því, að Alþingi verði gert að einni
málstofu. Ætti slíkt skipulag, ef
úr verður, að geta leitt til þess,
að fleiri þingmál hlytu afgreiðslu,
og auðvelt ætti að vera aðtryggja,
að þau fengju örugga meðferð.
Það er t. d. nokkuð kátlegt, að
jafn-lítilvæg mál og sala eyði-
jarða eða veiting stýrimannsrétt-
inda til manns, sem lært hefur
erlendis, skuli verða að fara gegn-
um 6 umræður á Alþingi og tvær
nefndir fjalla um þau.
Full ástæða er til að hrósafasta-
nefndum Alþingis fyrir þauvinnu-
brögð, sem þær hafa. Þær leggja
greinilega alúð í vinnu sína og
kanna málin frá sem flestum hiið-
um. Og þau mál, sem stuttan
tíma tekur að afgreiða, er venju-
lega búið að undirbúa rækilega
í þingflokkunum, áður en þau eru
lögð fram, og þingmenn hafa þar
fengið glögga innsýn í þau.
ÞINGSKÖPIN
ENDURSKOÐUÐ.
Nefnd, sem kjörin var til að
endurskoða gildandi lög um þing-
sköp, hefur skilað áliti sínu í
frumvarpsformi, sem tekið hefur
verið til umræðu í neðri deild. í
nefndinni áttu sæti fulltrúar
stjórnmálaflokkanna, svo og for-
setar þingsins. Tillögur nefndar-
innar eru allar spor í rétta átt,
en ekki er hægt að segja, að þær
breyti miklu, enda kom það i
ljós, að hún lagði aðeins fram þær
tillögur, sem full samstaða var
um. Úr því að unnið er að endur-
skoðun þingskapa á annað borð,
ætti að taka þau mál fastari tök-
um, heldur en nefndin leggur til,
og gera allar þær breytingar, sem
telja má nauðsynlegt að gera.
Það mætti t. d. telja furðulegt,
ef samstaða næðist ekki á Alþingi
um að leggja útvarpsumræður að
öllu niður með því formi, sem nú
er á þeim. Slíkar tilbúnar umræð-
ur gefa með öllu ranga hugmynd
AÐALVINNINGUR
arsins '
ÚTDREGINN i 12.flokki
2
EKKERT HAPPDR/ETTI
HÉREENDIS
BÝDUR JAFNHÁAN
VIHNING
Á EINN MIDA
MILLJONIR KR.