Frjáls verslun - 01.03.1968, Blaðsíða 55
FRJÁLS VERZLUN
55
RONSON
Það hæfir öllum
það bezta.
Það vinsælasta
er
RONSON
RONSON gull
RONS ON stál
RONS ON marmari
RONS ON kristall
RONS ON keramik
RONS ON teak
RONS ON palisander
RONSON á borðið
RONS ON í vasann
við höfum allt
sem
RONS ON
íramleiðir
7ó‘
OBAKSVERZLUN
OAAA.SAR-
LAU6AVE0/ 62 - 6ÍM/ 13776 -
AF ERLENDUM VETTVANGI
ENN ÁTÖK MILLI ISRAELS
OG ARABARÍKJANNA
PAUL LUECKE BIÐST LAUSNAR
IAN SMITH VILL SAMNINGA-
VIDRÆDUR VID BRETA
TVENNS KONAR VERÐ 4 GULLI
ÍSRAEL OG
ARABARÍKIN
Til heiftarlegra bardaga kom milli
Israelsmanna og Jórdana 21. marz, og
áttu hinir fyrrnefndu upptökin. ísra-
elsmenn réðust yfir landamæri Jór-
daníu í þeim tilgangi að eyðileggja
aðalbækistöðvar A1 Fatah-skærulið-
anna arabísku. einkum bækistöð
þeirra í Karameh-flóttamannabúðun-
um suður af Damaya-brúnni. A1
Fatah-skæruliðarnir hafa gert ísra-
elskum hermönnum marga skráveif-
una undanfarið. Jórdanar segja, að
þeir hafi i þessum átökum neytt
Israelsmenn til undanhalds, 200þeirra
hafi verið felldir og 30—40 skriðdrek-
ar eyðilagðir. Á hinn bóginn segjast
ísraelsmenn hafa misst fáa, en fellt
115 skæruliða.
Á sunnudagskvöld samþykkti ör-
yggisráð Sameinuðu þjóðanna álykt-
un, þar sem innrás Israelsmanna er
fordæmd, og samtímis er sérhvert
brot á vopnahléssamkomulaginu fyrir
botni Miðjarðarhafs fordæmt, af
hvaða hálfu sem það er. Skírskotun-
in til þess, að brot á þessu samkomu-
lagi skuli vera fordæmd almennt, fel-
ur í sér milcilvæga tilslökun, sem
fulltrúar vesturveldanna í öryggis-
ráðinu hafa fengið framgengt að
tjaldabaki eftir umfangsmiklar og
erfiðar samningaviðræður, og er þar
að sjáifsögðu átt við hermdarverka-
aðgerðir Araba gegn Israelsmönnum.
Moshe Dayan, varnarmálaráðherra
ísraels, sagði eftir árásina, að hún
hefði verið mjög mikilvæg og myndi
hafa mikil áhrif á þróunina fyrir
botni Miðjarðarhafs. Dayan sagði, að
ekki hefði verið hjá því komizt að
gera þessa árás. Ástandið á landa-
mærum Jórdaníu og Israels er enn
mjög ótryggt, og báðir aðilar bíða
frekari hernaðartilskipana frá yfir-
mönnum sínum.
RHÓDESÍA
Ian Smith, forsætisráðherra Rhó-
desíu, sagði í lok marzmánaðar, að
beinar viðræður við Bretland væru
bezta leiðin til að jafna ágreining
landanna tveggja. Mátti greinilega
skilja á þessum ummælum Smiths,
að hann væri enn reiðubúinn til
samningaviðræðna, þrátt fyrir síðustu
viðburði i landinu, er fimm blökku-
menn voru teknir af lífi, þótt Breta-
drottning hefði breytt dauðadómun-
um í ævilangt fangelsi. Smith sagði
ennfremur, að bæru viðræðurnar
ekki árangur, mundi Rhódesía halda
áfram áætlunum um að gera landið