Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1970, Page 20

Frjáls verslun - 01.04.1970, Page 20
zn FRJÁLB VERZLUN Valin efni vönduð smíð Mótaviður — Spónaplötur — Smíðaviður Krossviður — Þurrkaður viður — Harðtex Gagnvarinn viður — Olíusoðið masonite Viðarþiljur — Loftklœðning — Vegg- klœðning — Innihurðir — TJtihurðir — Bíl- skúrshurðir — Verksmiðjuhurðir—Carda- gluggar — Gluggar samkvœmt sér- teikningum — Þakpappi — Saumur Timburverzl. VÖLUNDUR HF. Klapparstíg 1, sími 18430 - Skeifunni 19, simi 36780 - Reykjavnk. VERKTAKAR RÁÐGEFANDI VERKFRÆÐISTÖRF Almenna byggingafélagið hf. Suðurlandsbraut 32, Reykjavik. Sími 38590. rekja nokkuð beint til þess, hve litlu er til rannsókna og til- rauna kostað á þessu sviði og raunar hefur skipulagsmálum sjaldnast verið sinnt fram yf- ir brýnustu nauðsyn líðandi stundar. Við höfum valið þá einföldu leið, að skattleggja húsbyggingar lítillega í því skyni að kosta skipulagningu byggðarinnar, en það fé, sem þannig fæst, er mjög takmark- að og rennur að auki aldrei ó- skipt til þeirra mála. Skipu- lagsmál eru þannig einn af tekjustofnum ríkissjóðs, gagn- stætt því sem þekkt er annars staðar á byggðu bóli. Arangurinn er sá, að fæst bæjarfélög á landinu eru þess megnug að mæta þeirri þró- un. sem yfir þau dynur án miskunnar, byggðin verður ó- samstæð og tilviljunarkennd og ýmsar framkvæmdir van- hugsaðar og dýrar. Öllu verra er þó, að enn erum við sára- litlu nær um hvernig hentug- ast væri að byggja borgir við þær sérstöku aðstæður, sem hér eru fyrir hendi, né höfum við nokkra vitneskju um, hvort þær íbúðir og íbúðahverfi, sem byggð eru í dag til að standa um aldir, muni á nokk- urn hátt geta svarað þeim kröfum, sem til þeirra verða gerðar eftir nokkra áratugi. Fyi’ir þennan þekkingarskort eru sjónarmið líðandi stundar nær einráð um að móta það umhverfi, sem standa skal um langa framtíð. í bezta ifalli eru það meira eða minna óljósar hugmyndir um þarfir og vel- ferð einnar kynslóðar, sem ferðinni ráða, en oft blandast þó þar inn í jafn skammlíf sjónarmið og tilviljunarkennd- ur yfirráðaréttur yfir bygging- arlandi, lánapólitík eða beinir persónulegir hagsmunir nokk- urra fárra. Enn hefur ekki tekizt að skilgreina nokkrar nothæfar eða algildar mælieiningar til að meta „gæði“ skipulags og hlýt- ur gerð þess því óhjákvæmi- lega að mótast verulega af per- sónulegum viðhorfum og reynslu þeirra er um það fjalla. Þarfir og óskir þeirra, sem not hafa að verkinu fullunnu eru

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.