Frjáls verslun - 01.04.1970, Blaðsíða 48
40
FRJALS VERZLUN
aður okkar komist á skrið, og:
sparað fé, fyrirhöfn og mistök,
sem við höfum ekki efni á og
eru óþörf.
Við þurfum að eignast stofn-
un, sem sameini fjármagn til
húsnæðismála og samræmi
fjármögnunina. Þar er til fyrir-
mynd, raunar fleiri en ein. Við
þurfum að stórefla rannsóknir
og tilraimir. Við þurfum að
byggja upp raunverulegan
byggingariðnað. Að þessum
þáttum eru til margar gagn-
legar fyrirmyndir.
Fyrirmyndirnar frá ná-
grannaþjóðunum eiga að verða
okkur stoð til að byggja upp
íslenzkan byggingariðnað, sem
er forsenda þess, að við leysum
að marki það þjóðfélagsvanda-
mál, sem framkvæmdahættir í
húsnæðismálum og bygginga-
starfsemi eru nú, og þar með
húsnæðisvandann.
Myndir á bls. 39 eru tákn-
rænar annars vegar fyrir hand-
verkið hins vegar fyrir tækni-
væddan byggingariðnað. A
neðri myndinni sjást fram-
kvæmdir við raðhús, allt frá
því að aðeins er búið að grafa
grunn og til nær fullgerðs húss.
Þarna baukar hver fyrir sig
og rækni eða endurrekning
njóta sín í enguó Á efri mynd-
inni er verið að flytja verk-
smiðjuframleiddan stiga á sinn
stað í fjölbýlishús í byggingu.
Myndirnar hér á síðunni
sýna lítillega þróun í gerð fjöl
býlishúsa í Reykjavík.