Frjáls verslun - 01.04.1970, Blaðsíða 59
FRJÁLS VERZLUN
51
um mikinn svip (Terrazzo).
Þegar um staerri gólf er að
ræða, er bezt að hafa gadda-
skó á fótum, sem ganga má á
í blautu gólftexinu á meðan
flögunum er stráð. (Þetta má
útbúa með því að reka í gegn-
um fjalarbúta). Dreifingin fæst
jöfnust með því að kasta flög-
unum vel upp í loftið og með
sveiflu út á við um leið, líkt og
við sáningu á fræi. Ef loftból-
ur myndast þegar gólftexinu er
rakað út, er hægt að eyða þeim
með þar til gerðum gaddarúll-
um, áður en plastflögunum er
dreift. Gólftexið harðnar á ca.
16 tímum við stofuhita.
Þegar flögur eru notaðar í
Gólftexið, er sjálfsagt að lakka
einu sinni til tvisvar yfir með
glæru Gólftex-lakki. Til þess
má nota pensil eða lakkrúllu.
Bezt er að lakka sem fyrst eftir
að Gólftexið er orðið hart.
Gólftex-lakkið þornar fyrir
áhrif rakans í loftinu, en þorn-
uninni er hægt að flýta með
því að nota lakk-herði. Nota
skal þá 6—10% af herði miðað
við lakk. Gólftex getur verið
hált, ef snjór er undir fótum,
en þetta má fyrirbyggja með
því að strá grófum jafnkornuð-
um sandi í blautt Gólftexið.
Þegar Gólftex er látið ganga
upp á veggi (gólflistar, upp-
stig í stigum), þarf að mála
lóðrétta flötinn undir með
plastmálningu í svipuðum lit
og Gólftexið er, því ekki er
hægt að bera þykkt á lóðrétta
fleti. Er þá ráðlegast að mála
undir með Polytex. Bezt er að
nota límband til þess að af-
marka gólflistana. Gólftexið
skal bera fyrst á lóðrétta flöt-
inn og kasta flögunum í, sópa
síðan upp þeim flögum, sem
dottið hafa á lárétta flötinn,
áður en borið er á hann. Nota
skal pensil eða lakkrúllu við
að bera á lóðrétta fieti. Athug-
ið að fjarlægja límbandið
strax og búið er að ganga frá
gólflistanum, þ. e. áður en lagt
er á sjálfan gólfflötinn.
Gólftex-grunnur þekur ca.
7m2 pr. lítra.
Gólftex þekur ca. lm“ pr.
lítra, ef lagt er 1 mm. þykkt
lag.
Gólftex-lakk þekur ca. 9m"
pr. lítra.
Gólftex, Gólftex-grunn og
Gólftex-lakk má þynna með
Gólftex þynni. Varast ber að
þynna Gólftex meira en sem
svarar 5—7%. Þynninginseink-
ar hörðnun Gólftexins.
Áhöld skal ávallt þvo strax
að lokinni notkun. Ef Gólftex
harðnar á áhöldum, er bezt að
reyna að brenna það af, ef
áhöldin leyfa.
Gólftex-grunnur og Gólftex-
lakk geta harðnað fyrir áhrif
raka í andrúmsloftinu. Þess
vegna er nauðsynlegt að loka
vel og vandlega þeim ílátum,
sem þessi efni geyma, ef þau
eiga ekki að harðna.
Rétt er að geta þess, að Gólf-
tex-lakk er í flokki þeirra
sterkustu parket gólflakka, sem
hægt er að fá.
Framleiðandi:
Efnaverksmiðjan Sjöfn,
Akureyri, sími (96)21400.
(Auglýsing.)
Við gerum myndamótin
fyrir yður
Fljót og góð afgreiðsla
PRENTMYNDAGERÐIN
Hverfisgötu 4-Reykjavík-Sími 24510
Prentmyndagerðin h/f
Hverfisgötu 4.
Sími 24510.