Frjáls verslun - 01.04.1970, Síða 47
FRJÁLS VERZLUNf
39
að skipulagning byggðar og
lóðaúthlutun miði að sama
marki og séu samræmdar bygg-
ingariðnaðinum og húsnæðis-
þörfinni.
3. Þessum tækjum, svo og
rannsóknum og tilraunum, þarf
svo að beina að eftirfarandi
m.a.: A. Nýtingu innlendra hrá-
efna. B. Stöðlun húsa og hús-
hluta, stöðlun innréttinga. C.
Verksmiðjuframleiðslu og stöð-
ugum framkvæmdum allt árið.
D. Varanleika efnis og áferðar
E. Fjölbreytilegum notkunar-
möguleikum (breytingamögu-
leikum), með hliðsjón af þróun
húsnæðisþarfa.
Það er skoðun mín, að bygg-
ingastarfsemi sé fyrst og fremst
verkefni byggingariðnaðar á
nútímvísu. Það á að vera verk-
efni öflugra byggingafyrir-
tækja að byggja stærri íbúðar-
hús og búa þau fullgerð í hend-
ur borgaranna. Með öðru móti
náum við ekki nauðsynlegum
markmiðum í húsnæðismálum.
Eins á það að vera verkefni
þessara aðila að byggja einnig
a.m.k. að verulegu leyti raðhús
og einbýlishús, en þar getur
vissulega komið til greina eig-
in vinna boi'garanna að vissu
marki, sérstaklega samsetning
eininga af ýmsu tagi í stað fag-
vinnu.
Komist byggingastarfsemin i
þetta horf, verður að sjálfsögðu
að endurmeta alla vinnuafls-
þörf, skiptingu hennar milli
iðnaðar og iðju, og allt launa-
kerfi vinnuaflsins. Núgildandi
taxtar byggingariðnaðarmanna
eru þannig, að stöðlun, stærð
verkefna og endurtekningar
njóta sín ekki eins og skyldi,
og sama er að segja um taxta
arkitekta og tæknimanna.
REYNZLA ANNARRA.
Eins og að líkum lætur, er
reynzla okkar á sviði bygging-
ariðnaðar af skornum skammti,
og á ég þá við raunverulegan
byggingariðnað, allt frá stjórn-
un til sölu. í nágrannalöndun-
um liggur hins vegar fyrir dýr-
mæt reynzla, sem að vísu getui
ekki nýtzt okkur ómelt, en mik-
ilvægt er að við notfærum okk-
ur. Með því getum við flýtt
því verulega, að byggingariðn-