Frjáls verslun - 01.04.1970, Side 55
FRJALS VERZLUNf
•47
Af þessu má vera ljóst að fjöl-
skylda, sem getur lagt 60 þús-
und krónur í húsnæðiskostnað
árlega getur aðeins borgað
helminginn af því fé í vexti
eða 30 þús., en það samsvarar
íbúðarkostnaði upp á 500 þús.
Til þess að fjölskyldan gæti
flutt inn í milljón króna íbúð,
þyrfti hún hins vegar að hafa
yfir 100 þúsund krónur til ráð-
stöfunar í húsnæðiskostnað mið-
að við þessi kjör. Algengir fast-
eignavextir hér eru 8-10%, og
því er fjárþörfin miklu meiri.
Ég tel að félagslegar rannsókn-
ir vanti til þess að leiða í ljós,
hvað hver fjölskylda geti lagt
mikið af sínum tekjum til hús-
næðiskostnaðar. Fráleitt er að
ætla fjölskyldunni að leggja
helming tekna sinna í þetta
eina atriði og vandséð er hvern-
ig atvinnuvegir okkar geta lagt
launþegum sínum til nægar
tekjur til að standa undir svo
mikilli framfærslu sem þessar
tölur benda á.
Tölurnar hér að framan eru að
meira og minna leyti úr lausu
lofti gripnar, en af þeim blasir
við að lækkun vaxtakostnaðar
er árangursvænlegast til lækk-
unar á húsnæðiskostnaði. Á
þessu er vissulega rannsókna
þörf en jafnframt er þörf rann-
sókna á möguleikum þess að
lækka byggingakostnaðinn.
Byggingakostnaður.
f íslenzkum byggingariðnaði
er algengast að efnis-' og vinnu-
kostnaður séu af svipaðri stærð-
argráðu, en auk þessara tveggja
stærstu liða byggingakostnað-
arins verður að taka inn ýmsan
umsýslukostnað og þannig þrí-
skiptur yrði þessi kostnaður
45 : 45 : 10. Hagræðing og
sparnaður í vinnu getur þannig
aðeins haft áhrif á 45% bygg-
ingakostnaðar, ef um óbreytta
efnisnotkun er að ræða. 10%
sparnaður í vinnu hefur því að-
eins 414% áhrif á heildarbygg-
ingakostnaðinn.
Nokkra veigamikla áhrifa-
valda á byggingakostnað má
nefna: 1) Skipulagningu fjár-
mögnunar, stærða og gæðakröf-
ur, sem til íbúðarinnar eru gerð-
ar. 2) Stærðastöðlun, sem hnigi
að því að hægt verði að koma
tesakrepp er jafn nauðsynlegt
og pensillinn og málningardollan.
1 il þess að fullkomið útlit náist að verki loknu, ber nauðsyn til að þér
hafið tesakrepp, sem limir sig sjálft. Allstaðar, þar sem útiloka þarf
málningarslettur - t.d. á hurðarhandföngum og rúðum eða þar sem
ná verður hreinum og beinum brúnum litarflata, þekið þér með
tesakrepp. Einnig er auðvelt að mynda með því beygjur og þekja
ójafna fleti vegna þess hve þjált það er.
Ogaðrnálningu lokinni ? Auðvelt er að íjarlægja tesakrepp. Árangurinn
sannar að sjón er sögu ríkari.
Umboð:
J. S. Helgason
Revkjavík