Frjáls verslun - 01.04.1970, Síða 56
4B
FRJAL5 VERZLUN'
Merkíö sem allír þekkja
Úrval fallegra líta
ný sendiné
ný mynstur
KLÆÐNING HF
LAUGAVEGI 164 SÍMAR 21444-19288
við verksmiðjuframleiddum ein-
ingum, svo sem skápum og
borðum, hurðum og gluggum.
3) Efnis og aðferða val. 4) Og
síðast en ekki sízt skipulagn-
ingu framkvæmdanna sjálfra,
þannig að fjármagnskostnaður
á byggingartíma verði ekki allt-
of hár og að viðunandi vinnu-
afköstu náist. Öll þessi atriði
þarf að hanna áður en bygginga-
framkvæmdir hefjast. Raunar
eru þetta allt hönnunaratriði,
en rannsókna er þörf til þess að
hönnuðir geti lagt línurnar um
framvindu málanna. .
Félagslegar ákvarðanir, svo
sem upphæð vaxta, afskrifta-
tími lána, fasteignaskattar og
tryggingar eru vissulega háðar
heildarupphæð fjárfestingar í
byggingariðnaði og þannig
tengdar byggingakostnaði. —
Rannsóknir á sundurliðun bygg-
ingakostnaðar eru þess vegna
æði veigamikið atriði.
Varanleiki og viðhald.
Varanleiki mannvirkja og
viðhaldskostnaður þeirra er
vissulega æði stórt rannsókna-
verksvið hér á landi. Við þúum
við sérlega umhleypingasama
veðráttu og áhrif þess á mann-
virki dylst engum. Raka- og
frostskemmdir blasa hvarvetna
við, enda verður það að teljast
eðlilegt meðan upplýsingar um
það, hvernig þær beri að var-
ast, eru ekki aðgengilegar fyr-
ir hinn almenna byggjanda.
Byggingaskemmdir eru stór
liður í húsnæðiskostnaði þjóð-
arinnar. Ti.l viðbótar því, sem
áður er minnzt á má hér nefna
skemmdir á einangrunargleri og
einangrun í húsum. Þótt verið
sé að vinna að útgáfu íslenzkra
byggingastaðla eru þeir þó enn
engir til, en afleiðing af því er
að á byggingavörumarkaðinn
koma vörur, sem ekki full-
nægja þeim gæðakröfum, sem
gera verður til þeirra.
Verðvitund.
Skortur á verðvitund í bygg-
ingariðnaðinum er þjóðinni dýr.
Þessi skortur stafar að vísu mest
af því að vantrú er mikil á ís-
lenzkum gjaldmiðli og að sífelld
verðbólga hefur ríkt með þjóð-
inni, en jafnframt af því að