Frjáls verslun - 01.05.1971, Qupperneq 13
FRJÁLS VERZLUN NR. 5 1971
34.9%. Inni í þessum tölum er
viðbótin við Hótel Loftleiðir
og allt núverandi rými Hótel
Esju.
Á döfinni er að stækka Hót-
el Sögu og Hótel Holt, svo og
er á undirbúningsstigi stofnun
nýs hótels við Rauðarárstíg, en
forvígismaður er Lúðvíg
Hjálmtýsson. Á Laugarvatni
hefur nú bætzt við þriðja sum-
arhótelið, í húsi Kvennaskóla
Suðurlands. Unnið er að bygg-
ingum nýrra hótela í Stykkis-
hólmi og á Húsavík, og á döf-
inni er stækkun Hótel KEA á
Akureyri.
Af þessari upptalningu, sem
ekki er þó tæmandi, má sjá,
að töluverð hreyfing er í þess-
um efnum.
990 milljónir
í gjaldeyri
Reiknað hefur verið út,
hverjar gjaldeyristekjur urðu
árið 1970 af erlendum ferða-
mönnum, sem hingað komu.
Reyndust þær hafa verið kr.
990.495.202.90. Eru þetta bæði
beinar og óbeinar tekjur.
í grófum dráttum skiptast
þessar gjaldeyristekjur þannig:
ÍSLAND
Frá innl. flugf. 531.8
Frá erl. flugf. 9.7
Frá Frihöfninni 69.2
Frá ísl. markaði 23.7
Frá ferðaskr. 97.2
Frá hótelum 43.4
Frá ferðam. 215.2
Þess má geta, að íslenzkur
markaður h.f. hóf ekki starf-
semi fyrr en eftir mitt ár. Síð-
asti liðurinn, frá ferðamönnum,
er upphæð, sem skipt hefur ver-
ið beint í bönkum.
Til gamans má bæta því við,
að skráðar tekjur af hverjum
erlendum ferðamanni, í gjald-
eyri. hafa hækkað úr 190 krón-
um 1950 í 7.700 krónur 1970.
Vissulega verður að gera ráð
fyrir gengismun. En fyrst og
fremst hefur tekizt að fá ferða-
menn til að eyða hér meiru,
um leið og gjaldeyrisskil hafa
stórbatnað í kjölfar frjálsari
gjaldeyrisviðskipta og eðlilegr-
ar gengisskráningar.
Heildaráætlun
er a doiinm
Fyrir nokkru fékkst vilyrði
fyrir verulegum styrk frá ein-
um sérsjóða Sameinuðu þjóð-
anna, til þess að gera úttekt
13
og heildaráætlun um uppbygg-
ingu ferðamannaþjónustu hér
á landi í næstu framtíð. Er gert
ráð fyrir að þetta framlag verði
um 14 milljónir króna, en ís-
lenzka ríkið mun leggja fram
á móti 10-15% af þeirri upp-
hæð. Vonazt er til. að framlag-
ið fáist í ár, en næsta úthlutun
úr viðkomandi sjóði er um mitt
ár.
Áætlanir af þessu tagi hafa
verið gerðar mjög víða á und-
anförnum árum, sumar um gíf-
urlega uppbyggingu í fjölmenn-
um löndum. Fjölmörg erlend
fyrirtæki hafa sérhæft sig á
sviði slíkrar áætlunargerðar, og
hafa allmörg þeirra þegar haft
samband við þá aðila hér á
lndi, sem um þessi mál fjalla,
með áhuga á að taka að sér
gerð áætlunar hér. Ætti þvi
ekki að þurfa að standa á áætl-
unargerðinni. þegar fjármagn-
ið fæst.
Sú stefna hefur þegar verið
mörkuð varðandi þessa vænt-
anlegu ferðamálaáætlun hér,
að í henni felist fyrst og fremst
aðgerðir til að lengja ferða-
mannatímann og auka fjöl-
breytni þess, sem við getum
boðið erlendum ferðamönnum
til kaups.
TJARNARBÚ
VEIZLU- OG
FUNDASALIR
VONARSTR. 10
REYKJAVÍK
SÍMAR: 19000
19100