Frjáls verslun - 01.05.1971, Page 19
FHJÁLS VERZLUN NR. 5 1971
ÚTLÖND
19
urhöfnina, og verður öll upp-
fyllingin gerð úr grjóti, sem
sprengt er nú úr fjöllunum.
Gerð þessa athafnasvæðis á að
ljúka 1976, og er áætlað að það
kosti fullgert um 200 milljónir
ísl. króna. Er það talsvert hærri
kostnaður en ef uppfyllingin
hefði verið gerð að mestu úr
sandi, en grjótið var valið með
tilliti til traustleika og meiri
vinnu fyrir bæjarbúa á meðan
á framkvæmdunum stendur,
enda er sú vinnuaukning að-
dragandi að uppbyggingu vænt-
anlegra fyrirtækja á nýja at-
hafnasvæðinu.
Þarna er gert ráð fyrir marg-
víslegum nýjum atvinnurekstri,
s. s. stálskipasmíðastöð og
mörgum stærri iðnfyrirtækj-
um, þ. á. m. húsaverksmiðju.
Húsaverksmiðjan á að hefja
framleiðslu 1977, en þá á að
hrinda af stað uppbyggingu í-
búðarsvæðis, Maleneland, og
með því er gert ráð fyrir að
íbúatala Godtháb fjórfaldist.
Þá má geta þess, að innan
skamms verður tekið í notkun
nýtt hótel í Godtháb, Hotel
Grönland. Þar verða 88 rúm,
veitingastofa, danssalur fyrir
250 manns og bar fyrir 50
manns, — og við hótelið verð-
ur bílastæði fyrir alla 400 bíla
bæjarbúa. Þetta er annað nýja
hótelið í Grænlandi, sem vígt
er um þessar mundir, hitt var
nýlega vígt, en það er i Jak-
obshavn.
Bretland
Vinsæl tölvu-
þjónusta
Tölvuþjónusta brezku póst-
málastofnunarinnar hefur nú
verið í gangi í rúmt ár og eru
viðskiptavinir mjög ánægðir
með árangurinn. Þjónusta
þessi er í því fólgin að póst-
málastofnunin forskrifar sér-
stök kerfi, sem ná yfir alla sölu
og innkaup fyrirtækjanna,
þannig að þau geta ætíð fengið
að vita hvernig hagur og staða
er á hverjum tíma. Þá skilar
tölvan reglulega söluskýrslum
og rannsóknarskýrslum á vöru-
hreyfingu fyrirtækjanna. Sum
fyrirtæki hafa skýrt frá því að
þau hafi sparað allt að 6000
pund á ári í sölukostnaði.
Þekkt vðrumerki,
mesta
rjölbreyttnin
Radíófónn
hinna
vandlátu
Klapparstíg 26, sími 19800