Frjáls verslun - 01.05.1971, Qupperneq 43
FRJÁLS VERZLUN NR. 5 1971
GREINAR OG VIÐTÖL
43
LAIVDSVIXI:
Búlgaría og Júgóslavia
Úr veitingahúsi
í Búlgaríu.
Ferðaskrifstofan Landsýn veitir alla almenna ferðaþjónustu
og skipuleggur einstaklingsferðir hvert sem menn óska. Skrif-
stofan sér um hópferðir til tveggja landa, Búlgaríu og Júgóslavíu.
Ferðir til Búlgaríu eru í samvinnu við Balkantourist sem er
búlgarskt ríkisfyrirtæki, er sér um öll ferðamál þar í landi. Farið
er með áætlunarflugi Loftleiða til Kaupmannahafnar og flogið
þaðan með Bulgarian Airlines til Varne eða Burgas. Er þangað
kemur er dvölin mjög frjáls og margir möguleikar á ýmsum
skoðunarferðum. Verð á hálfsmánaðarferð er frá 20.600 kr. upp
i 32.000 kr. en verð er dálítið misjafnt eftir árstímum.
Ferðir til Júgóslavíu eru í samvinnu við júgóslavnesku ferða-
skrifstofuna Yugotours. Fyrirkomulag er svipað og í Búlgaríu-
ferðunum. Flogið er til Kaupmannahafnar með Loftleiðum og
þaðan með*-Sterling Airways til Istria, Dalmatia eða Dubrovnik
eftir því hvað hver og einn hefur kosið. Yugotours sjá svo um
alla fyrirgreiðslu á hverjum stað. Hálfsmánaðar ferðir til Júgó-
slavíu kosta frá 20.000 kr. til 30.000 kr. en hægt er að velja um
8 og 15 daga ferðir.
Baðströnd og hótel skammt frá Dubrovnik.
Vöruverðlag og
viðskiptahættir
Flestir íslendingar,
sem fara utan, gera ein-
hver innkaup, þótt aðal-
tilgangur ferðarinnar sé
e. t. v. hvíld og hressing.
Það getur ært óstöðugan
að ætla sér mikil inn-
kaup í stórborgunum, ef
viðkomandi er ekki þeim
mun kunnugri eða hefur
ekki aðstoð. Sérstaklega
getur það orðið raunaleg-
ur endir á hvíldarferð,
að lenda inni í magasíni
á laugardagsmorgni, þar
sem múgmennskan hvolf-
ist yfir með öllum sínum
þunga.
í Vestur-Evrópu er
vöruval víðast nauðalíkt,
og verðlag tiltölulega
líkt. Þó er vafalaust ó-
dýrastur fatnaður í Bret-
landi. Á Spáni er verð á
leðurvörum, skartgripum
og listmunum lægra en
gerist og gengur. í Mið_-
Áusturlöndum er verð á
slíkum vörum lágt, en
vöruval jafnframt gífur-
legt og ekki ónýtt að
komast á markað t. d. í
Damascus, sem þeir þar
kalla basar. Verðlag í
Bandaríkjunum er mjög
upp og ofan, en margs
konar fjöldaframleiðslu-
vörur má fá þar ódýrar.
Um þjónustuverðlag
er svipaða sögu að segja,
það er álíka víðast í Vest-
ur-Evrópu. en lægra þeg-
ar sunnar og austar dreg-
ur.
Margar venjur í fjar-
lægum löndum, sérstak-
lega þar sem þróun er
skemmra á vegi, eru ólík-
ar því, sem íslendingar
eiga að venjast. Víða er
ekkert vit í að verzla,
nema prútta af hörku. Þá
er rétt að hugsa sig um
tvisvar áður en betlurum
er sinnt. Og næturlífið er
víða viðsjárvert, ekki síð-
ur í næstu stórborgum.
Loks þarf að átta sig á
mismunandi kröfum um
auka-þjónustugjald til
burðarkarla og annarra,
sem stunda þjónustustörf.