Frjáls verslun - 01.06.1971, Side 34
34
VILHJÁLMUR HJÁLMARS-
SON ARKITEKT UH BREYT-
INGAR í HÚSAGERÐ
Ef kommúnulíf
ryddi sér til
rúms, yrðu fyrst
verulegar breyt-
ingar
Hvað er að gerast hjá íslenzk-
um arkitektum, hvernig starfar
arkitektinn og hver eru vanda-
mál hans í sambandi við starf-
ið? Til þess að fá svar við þess-
um spurningum og nokkrum
til viðbótar snérum við okkur
til Vilhjálms Hjálmarssonar
arkitekts. sem vinnur á teikni-
stofunni Óðinstorgi sf.
Vilhjálmur sagði að húsagerð
á íslandi ætti sér ákveðnar for-
sendur sem sprottnar væru upp
úr þjóðfélaginu og ytri aðstæð-
um og væri arkitekinum snið-
inn stakkur eftir því.
Hin kalda og breytilega veðr-
átta á íslandi hefur það í för
með sér að steinsteypa er það
efni sem æskilegast er að nota,
sagði Vilhjálmur. Hins vegar
má deila um það hvernig tek-
izt hefur til með notkun þess
efnis hér fram til þess. En
steinsteypa er og verður rétt
svar við vindum og vetrarhörk-
um íslands. Síðan sagði Vil-
hjálmur að þegar arkitekt væri
beðinn um að teikna hús fyrir
Framhald á bls. 42.
GREINAR OG VIÐTÖL
SNORRI HAUKSSON INNAN-
HÚSARKITEKT UM INNAN-
HÚSARKITEKTÚR
Innanhús-
arkitekt á að
geta gefið hús-
næðingu stemn-
ingu
Til þess að fá upplýsingar
um innanhúsarkitektúr snér-
um við okkur til Snorra Hauks-
sonar innanhúsarkitekts og
spurðum hann um eðli fagsins
og þýðingu þess fyrir húsbyggj-
endur.
Sú þjónusta, sem veitt er, er í
margvíslegu formi og varðar
m. a. uppmælingu. teikningar,
verklýsingu, efnisval, eftirlit
og verksamninga. Oft er innan-
húsarkitektinn beðinn að afla
tilboða hjá innréttingaverkstæð
um og gera verksamninga við
það verkstæði. sem hagstæðast
býður. í verklýsingu er tekið
fram hvaða meðhöndlun efnin
skulu fá (lakk, bæs, viðarteg-
undir, rakastig smíðaviðar o.
m. fl.) Efnisval felst í því, að
velja saman margvísleg efni,
eins og gólf- og veggflísar,
teppi og gluggatjöld og fl.
þannig að heildarsamræmi
skapist. Þess skal jafnframt
gætt að þessi efni séu ending-
argóð og gallalaus. Eftirlit feist
í. að sjá um að smíðavinna og
Framhald á bls. 43.
FRJÁLS VERZLUN NR. 6 1971
VÍFILL ODDSSON VERK-
FRÆÐINGUR UM ÞÁTT
BYGGINGAVERKFRÆÐI
Verkfræðiga
ætti að nota
meira við skipu-
lagningu og
undibúning
Vífill Oddsson byggingaverk-
fræðingur. sem vinnur á teikni-
stofunni Óðinstorgi sf.. leysti
úr nokkrum spurningum í sam-
bandi við sérgrein sína.
Hver er hlutur verkfræðinga
í byggingariðnaði hér á landi?
Hlutur verkfræðinga í bygg
ingariðnaði er fyrst og fremst
i sambandi við að ganga frá
verkfræðiteikningum viðkom-
andi bygginga. Verkfræðingar
hafa mjög lítið fengizt við
skipulagningu framkvæmda
hér á landi og væri æskilegt að
þeir færu meira inn á þá braut
og að þeir væru nýttir meira til
þess, en hér er oftast ráðist i
bggingarframkvæmdir án þess
að nauðsynlegt skipulags- og
undirbúningsstarf hafi verið
unnið.
Verkfræðinga ætti að nýta
til skipulags og áætlunargerða
áður en farið er út í frekari
byggingarframkvæmdir en
ekki að nota verkfræðingana
fyrst og fremst sem reiknivél-
ar til þess að fullgera teikning-
Framhald á bls. 43.